Skólagerði 47

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 19. ágúst var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 47 við Skólagerði fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. nr. 38, 40, 41, 43, 45, 49, 51, 53 og 55 við Skólagerði og nr. 60, 62 og 64 við Borgarholtsbraut.

Í breytingunni felst stækkun á íbúðarhúsi um 16,1 m², breytingar og lagfæringar á útitröppum og reistur nýr bílskúr 52.8 m² að stærð. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,49 í 0,65.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1072/2024, eigi síðar en mánudaginn

14. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Skólagerði 47
Tímabil
11. september - 14. október 2024