Skálaheiði 1

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 16. september 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Skálaheiði 1.

Í breytingunni felst 30 m² viðbygging út á þak núverandi bílgeymslu.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1139/2024, eigi síðar en miðvikudaginn 23. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Skálaheiði 1
Tímabil
23. september - 23. október 2024