Lyngbrekka 20

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 2. september 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Sótt er um að koma fyrir þaksvölum á bílskúrsþaki sem er sambyggður húsinu.

Vakin er áthygli á því að meðfylgjandi uppdrættir eru ekki í réttum mælikvarða þar sem þeir eru útprentaðir í blaðastærð A3 í stað A2. Gögnin eru aðgengileg í réttum kvarða á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, málsnr. 1135/2040 og á vef Kópavogsbæjar.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1135/2024, eigi síðar en miðvikudaginn 23. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Lyngbrekka 20
Tímabil
23. september - 23. október 2024