- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 15. júlí 2024 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 31. maí 2024 þar sem umsókn Vífils Magnússonar arkitekts f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu við austurhlið einbýlishússins á lóðinni fyrir nýja bílageymslu með sólstofu ofan á. Heildarstærð viðbyggingarinnar er 87,6 m². Heildarbyggingarmagn á lóðinni eykst úr 246,6 í 334,2 við breytinguna og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,26 í 0,35.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1-11, 12, 14 og 16 við Hraunbraut.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 966/2024, eigi síðar en 30. ágúst 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin