Grænatún 20B

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 5. febrúar 2024 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 26. janúar 2024 vegna umsóknar Einars V. Tryggvasonar dags. 24. október 2022 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20B við Grænatún um byggingarleyfi. Sótt er um leyfi fyrir að byggja 11,1 m² sólstofu. Nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 0,36 í 0,37.

Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 16, 18, 22 og 24 við Grænatún. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 22. ágúst 2024.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 941/2024, eigi síðar en 22. ágúst 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Grænatún 20B
Tímabil
18. júlí-22. ágúst 2024