- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Grenndarkynning.
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 15. júlí 2024 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna að nýju breytta byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg, tillaga dags. 12. nóvember 2023, uppfærð 16. febrúar og 12. ágúst 2024, fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 52, 54, 56, 58, 60, 64, 64A, 65-95 við Álfhólsveg og nr. 13, 16, 17, 17A, 18, 19, 20,21, 22, 24, 26 við Bjarnhólastíg. Í breyttri tillögu sem nú er til kynningar hefur verið komið til móts við sjónarmið sem fram komu í athugasemdum sem bárust í fyrri grenndarkynningu og þeim atriðum sem komu fram í umsögn skipulagsdeildar Kópavogsbæjar dags. 28. júní 2024, uppfærð 12. júlí 2024.
Í breyttum gögnum er óskað eftir heimild til að reisa 158,2 m² tveggja hæða nýbyggingu með tengingu við vesturgafl núverandi íbúðarhúss á lóðinni og fjölgun íbúða úr einni í tvær. Nýju bílastæði er komið fyrir við hlið núverandi bílastæða á lóðinni og þeim fjölgar úr tveimur í þrjú stæði. Fallið er frá áformum um að fjölga innkeyrslum að lóð. Lóðin er 998 m² að stærð og byggingarmagn eykst úr 183 m² í 341,2 m². Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,34 í stað 0,18. Uppdrættir í kv. 1:500 og 1:100 dags. 12. nóvember 2023, uppfærðir 16. febrúar og 12. ágúst 2024.
Helstu breytingar frá fyrri grenndarkynningu dags. 13. mars og leiðrétt 20. mars 2024 ásamt uppdráttum dags. 12. nóvember 2023 og uppfærðir 16. febrúar 2024:
Nánar um tillöguna vísast til meðfylgjandi kynningargagna.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1071/2024, eigi síðar en föstudaginn 11. október 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin