Vallargerði 34

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 7. október 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Vallargerði 34.

Í breytingunni felst stækkun stofu út á núverandi svalir og nýjar svalir á núverandi bílskúrsþaki ásamt fallvörnum. Byggingarmagn á lóðinni eykst um 7,8 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,33 í 0,41.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt eigi síðar en 4. desember2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Vallargerði 34
Tímabil
4. nóvember - 4. desember 2024