- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 20. desember sl. var lagt fram erindi Einars Ólafssonar arkitekts dags. 9. september 2021 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 32. Í erindinu er óskað eftir að að byggja skyggni yfir innganga íbúða á þriðju hæð og bæta við tveimur gluggum á austur- og vesturhlið. Uppdrættir dags. 17. desember 2021.
Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 30, Dalbrekku 27, 29, 56 og 58.
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til kl. 15:00 - 31. janúar 2022.
Ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skal skila skriflega til Skipulags- og byggingardeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin