Naustavör 5A

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 4. nóvember 2024 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 5A við Naustavör.

Í breytingunni felst að lóðin sem er 4x4m og 16 m² er stækkuð, til norðurs og austurs, í 5x7m eða 35 m². Er það gert til þess að koma fyrir tveggja spenna einingastöð. Flatarmál dreifistöðvarinnar er 15.06 m² og hámarks þak- og vegghæð hennar verður um 2,53 metrar.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 5/2025 á Skipulagsgáttinni, eigi síðar en 10. febrúar 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Naustavör 5A
Tímabil
9. janúar - 10. febrúar 2025