Hlíðarvegur 44

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 3. júní 2024 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 19. apríl 2024 þar sem umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 44 við Hlíðarveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir 18,1 m² viðbyggingu ofan á svalir annarrar hæðar á norð-vestur hlið hússins. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,37 í 0,40.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 37, 39, 40, 41, 42, 43, 46 og 48 við Hlíðarveg og nr. 27, 29, 31 og 33 við Reynihvamm.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 964/2024, eigi síðar en 29. ágúst 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Hlíðarvegur 44
Tímabil
30. júlí -29. ágúst 2024
Kynningargögn
Uppdrættir