- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 15. júlí 2024 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 28. júní 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um 16,4 m² viðbyggingu ásamt 15 m² geymslu á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,25 í 0,31.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 2, 4, 8, 10 og 12 við Hlégerði og nr. 63 og 65 við Borgarholtsbraut.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 965/2024, eigi síðar en 30. ágúst 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin