Hagasmári 1

Grenndarkynning

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 20. janúar 2025 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Hagasmára.

Í breytingunni felst að auka byggingarmagn í 64.000m² ásamt stækkun byggingarreits um 3,3 m² til suð-austurs. Í gildi er deiliskipulag sem var samþykkt í bæjarstjórn 14. febrúar 2006.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 169/2025, eigi síðar en 19. mars 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Hagasmári 1
Tímabil
13. febrúar - 19. mars 2025