Grenigrund 8

Grenndarkynning.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 10. febrúar 2025 var samþykkt með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir Grenigrund 8 fyrir hagsmunaaðilum að Grenigrund 6, 8A og 8B.

Sótt er um 8,3 m² stækkun íbúðar á jarðhæð.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 203/2025, eigi síðar en 20. mars 2025. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Grenigrund 8
Tímabil
19. febrúar - 20. mars 2025