Digranesvegur 15

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 18. nóvember 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn fyrir lóðina nr. 15 við Digranesveg.

Sótt er um tímabundna skólabyggingu samsetta úr 10 færanlegum einingum á norðausturhluta lóðarinnar, samtals 176,8 m² að flatarmáli.

Sérstök athygli er vakin á samráðsfundi sem verður haldinn þriðjudaginn 26. nóvember 2024 kl. 16:30 í fundarherberginu Fífuhvammi, á bæjarskrifstofum Kópavogs við Digranesveg 1, þar sem tillagan verður kynnt.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 1398/2024, eigi síðar en 20. desember 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Digranesvegur 15
Tímabil
21. nóvember - 20. desember 2024