- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 5. júlí 2021 var lögð fram að nýju umsókn Vegagerðarinnar dags. 27. maí 2021 um framkvæmdaleyfi fyrir breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku. Umsókninni fylgir útboðslýsing dags. í apríl 2021, uppdrættir í mkv. 1:20.000-1:20 dags. 21. apríl 2021, matsskýrsla dags. í júní 2009, áhættumat vatnsverndar dags. í maí 2021, jarðkönnun dags í nóvember 2008 ásamt fylgigögnum.
Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 8. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 að grenndarkynna ofangreinda umsókn um framkvæmdaleyfi hagsmunaaðilum og umsagnaraðilum.
Kynning hefst 18. ágúst 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til skipulagsdeildar Kópavogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir 17. september 2021. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin