Ásbraut. Nýtt deiliskipulag. Lýsing skipulagsverkefnis.

Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er lýsing skipulagsverkefnis hér með auglýst.


Verkefnalýsing til undirbúnings deiliskipulagsgerðar til kynningar.

Skipulagsráð samþykkti á fundi 15. júlí 2024 að kynna í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 lýsingu skipulagsverkefnis (skipulagslýsingu) vegna nýs deiliskipulags Ásbrautar.

 

Skipulagssvæðið nær til Ásbrautar 3-21 og hluta Hábrautar á Kársnesi. Markmið með deiliskipulagsvinnunni að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda í samræmi við aðalskipulag Kópavogsbæjar. Í lýsingunni eru settar fram helstu forsendur og markmið deiliskipulagsvinnunnar ásamt tímaáætlun skipulagsferlisins.

 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna.

Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 930/2024, eigi síðar en 23. september 2024.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Ásbraut. Nýtt deiliskipulag. Lýsing skipulagsverkefnis.
Tímabil
19. júlí - 23. september 2024