- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Grenndarkynning.
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 4. desember 2024 var lögð fram umsókn Sigurðar Lúðvíks Stefánssonar byggingarfræðings dags. 28. nóvember 2023 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 10 og 12 við Arnarsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst heimild fyrir fjarskiptaloftneti á vesturgafli húss.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:100 dags. 5. september 2023.
Bókun skipulagsráðs:
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 4-18 við Arnarsmára.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 83/2024, eigi síðar en 7. mars 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin