Bæjarstjórn

1158. fundur 23. maí 2017 kl. 16:00 - 18:30 í bæjarstjórnarsal í Gerðarsafni
Fundinn sátu:
  • Ármann Kristinn Ólafsson aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir varafulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet Halldórsdóttir aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson aðalfulltrúi
  • Sigurlaug Kristín Sævarsdóttir varafulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson aðalfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarlögmaður
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Önnur mál fundargerðir

1.1705005F - Bæjarráð - 2870. fundur frá 11.05.2017

Fundargerð í 25. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

2.1705008F - Bæjarráð - 2871. fundur frá 18.05.2017

Fundargerð í 16. liðum.
Lagt fram.
  • 2.7 1702040 Breiðahvarf 4a. Breytt deiliskipulag.
    Frá skipulagsstjóra, dags. 26. apríl, lögð fram tillaga Ragnheiðar Sverrisdóttur, arkitekts og Eyjólfs Valgarðssonar, byggingartæknifræðings fh. lóðarhafa þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi lóðarinnar nr. 4a við Breiðahvarf. Í breytingunni felst að byggingarreitur 1. hæðar stækkar til suðurs. Eftir breytingu verður grunnflötur hússins 170 m2 í stað 150 m2. Lengd byggingarreitar eykst úr 13 m í 17 m auk þess sem svalir fara 1,3 m út úr byggingarreit á suðurgafli og vesturhlið. Gert er ráð fyrir svölum á þaki bílgeymslu og að þak hússins verði einhalla í stað þess að vera flatt. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 13. febrúar 2017. Skipulagsráð samþykkir að grenndarkynna framlagða tillögu í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Breiðahvarfs 4, 6, 11, 13, 15, 17, Faldarhvarfs 11, 13, 15, 17 og Faxahvarfs 1 og 3.
    Athugasemdafresti lauk 27. mars 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust. Skipulagsstjóri samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
    Niðurstaða Bæjarráð - 2871 Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

3.1705014F - Forsætisnefnd - 96. fundur frá 18.05.2017

Fundargerð í 2. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

4.1705006F - Íþróttaráð - 71. fundur frá 11.05.2017

Fundargerð í 9. liðum.
Lagt fram.
  • 4.9 1705766 Lengdur opnunartími á laugardögum í Salalaug í sumar
    Lögð fram tillaga um að lengja opnunartíma Salalaugar frá 20:00 til 22:00 á laugardögum frá 1. júní og út september.
    Deildarstjóri greindi frá áætluðum kostnaði við tillöguna og að það væri innan ramma fjárhagsáætlunar ársins.
    Niðurstaða Íþróttaráð - 71 Íþróttaráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti en vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu íþróttaráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

5.1704025F - Lista- og menningarráð - 71. fundur frá 02.05.2017

Fundargerð í 2. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

6.1704029F - Menntaráð - 8. fundur frá 02.05.2017

Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

7.1704027F - Skipulagsráð - 8. fundur frá 15.05.2017

Fundargerð í 27. liðum.
Lagt fram.
  • 7.5 1611452 Smárinn. Nafngiftir á götum.
    Á fundi skipulagsráðs 3. apríl 2017 var lagt fram vinnuskjal dags. 28. mars 2017 með tillögum er bárust í nafnasamkeppni - götur og torg í 201 Smári. Alls bárust liðlega 1.200 tillögur um nöfn.
    Skipulagsráð fól skipulags- og byggingardeild að taka saman í samvinnu við Klasa ehf. og Reginn hf. lista með amk. 10 tillögum er bárust í nafnasamkeppni um götur og torg í 201 Smári og leggja fyrir næsta afgreiðslufund ráðsins.
    Lagt fram að nýju.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Lögð fram tillaga starfshóps að nafngiftum í samkeppni - götur og torg í 201 Smári. Skipulagsráð samþykkir tillöguna og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.8 1702406 Víghólastígur 14. Kynning á byggingaleyfi.
    Lagt fram að nýju erindi Sigurðar Hafsteinssonar byggingatæknifræðings dags. 11. janúar 2017 fyrir hönd lóðarhafa að Víghólastíg 14 þar sem óskað er eftir breytingum á þaki bílskúrs. Uppdráttur í mælikvarða 1:100. Samþykki meðeiganda liggur fyrir.
    Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Víghólastígs 11a, 11b, 12, 13 og Digranesvegi 75 og 77. Athugasemdafresti lauk 19. apríl 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.9 1703842 Hlégerði 17. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að nýju erindi Emils Þórs Guðmundssonar byggingatæknifræðings fh. lóðarhafa íbúðar 01-01 við Hlégerði 17 þar sem óskað er eftir stækkun íbúðar. Í breytingunni felst viðbygging til vesturs að heildarstærð 58,2 m2. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:1000 og skýringarmyndum dags. 30. nóvember 2016 ásamt undirrituðu samþykki meðeigenda dags. 6. mars 2017.
    Skipulagsráð samþykkti 20. mars 2017 með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda breytingu fyrir lóðarhöfum Hlégerðis 8, 10, 12, 15, 19 og Kópavogsbrautar 84 og 86. Athugasemdafresti lauk 15. maí 2017. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.11 1703542 Kársnesskóli við Vallargerði. Kynning á byggingarleyfi.
    Lögð fram að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs að staðsetningu færanlegra kennslustofa á lóð Kársnesskóla við Vallargerði. Uppdráttur í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. í mars 2017.
    Skipulagsráð samþykkti 20. mars 2017 með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Vallargerðis 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18 og Kópavogsbrautar 41, 43, 45, 47, 49, 51, 55, 57. Athugasemdafresti lauk 27. apríl 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn um athugasemdir og ábendingar er bárust á kynningartíma. Er umsögnin dags. 15. maí 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.12 1701484 Álfhólsvegur 102, Álfhólsskóli. Kynning á byggingarleyfi.
    Lagt fram að lokinni kynningu erindi sviðsstjóra Umhverfissviðs dags. 30. maí 2017 varðandi viðbyggingu við Álfhólsskóla við Álfhólsveg 102. Í tillögunni dags. 16. janúar 2017 er gert ráð fyrir að byggja við núverandi húsnæði til austurs og norðurs. Byggingarreitur fyrirhugaðrar viðbyggingar er um 30 m að lengd og 16 m á breidd. Vegg- og hámarkshæð viðbyggingar er áætluð 4,8 m til 7 m. Hámarks byggingarmagn viðbyggingar á áætlað um 990 m2. Aðkoma breytist og bílastæðum fjölgar um 45 stæði á norðausturhluta lóðarinnar sbr. teikningar Benjamíns Magnússonar í mkv. 1:100 dags. 29. maí 2010. Skipulagsnefnd samþykkti á fundi sínum 16. janúar 2017 með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Álfhólsvegar 98, 104, 115, 117, 119, 121, 123, 125, 127, 129, 131, Álfheiðar 8, 10 og Skálaheiðar 7 og 9. Kynningartíma lauk 27. febrúar 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 15. maí 2017. Í umsögninni er lagt til að komið sé til móts við athugasemdir varðandi bílastæði, fallist er á að bílastæðafjöldi og aðkoma verði óbreytt miðað við núverandi ástand.
    Tillagan lögð fram að nýju með ofangreindum breytingum dags. 15. maí 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Lagður er fram uppfærður uppdráttur og umsögn skipulags- og byggingardeildar, dags. 19.05.2017, sem unnið var á milli funda, með ákvörðun skipulagsráðs.

    Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.14 1704288 Fagrabrekka 13. Kynning á byggingarleyfi.
    Lögð fram að nýju tillaga Byggvir ehf. hönnunar- og tækniþjónusta þar sem óskað er heimildar til að endurgera þak hússins að Fögrubrekku 13. Við endurgerðina hækkar hluti þaksins um 50 sm miðað við núverandi þak. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 30. mars 2017.
    Skipulagsráð samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda tillögu fyrir lóðarhöfum Fögrubrekku 11, 12, 14, 15, Álfhólsvegi 143, 143a, 145 og 147.
    Lóðarhafi sendi í kjölfarið erindi með ósk um undanþágu með vísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin mun hafa óveruleg áhrif, ef nokkur á "landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn" þeirra lóðarhafa sem átti að grenndarkynna tillöguna fyrir. Lagður fram uppdráttur þar sem ofangreindir lóðarhafar við Fögrubrekku og Álfhólsveg hafa undirritað og gera því ekki athugasemdir við að þak á Fögrubrekku 13 verði breytt skv. teikningu dags. 30. mars 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.15 1702247 Markavegur 9. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram að lokinni kynningu erindi Arnars Þorvaldssonar lóðarhafa um breytt deiliskipulag á lóðinni Markavegi 9. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og lóð um 5 m. til austurs. Uppdráttur í mælikvarða 1:100 dags. 1. febrúar 2017 ásamt erindi. Skipulagsráð samþykkti 9. febrúar 2017 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Heimsenda 16 og 18. Athugasemdafresti lauk 3. apríl 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar um framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 15. maí 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
  • 7.16 1704228 Skjólbraut 11. Breytt deiliskipulag.
    Lagt fram af nýju leiðrétt erindi lóðarhafa Skjólbrautar 11 dags. 6. apríl 2017 þar sem fram kemur að húsið er á deiliskipulögðu svæði. Í erindinu felst ósk um að rífa einbýlishús á lóðinni um 120 m2 að flatarmáli byggt úr holsteini 1945 ásamt 17 m2 bílskúr byggður 1950. Lóðin er um 990 m2 að flatarmáli. Í erindinu er jafnframt óskað eftir að lóðinni verði skipt í tvær lóðir og parhús með samtals fjórum íbúðum verði byggð á lóðunum. Samanlagt gólfflatarmál er áætlað um 570 m2 og nýtingarhlutfall 0,58. Uppdrættir ES Teikninstofu í kv. 1:100 og 1:500 dags. 4. apríl 2017. Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Ólafs Þórs Gunnarssonar.
  • 7.17 1703848 Bakkabraut 8. Hafnarbraut 13 -15. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að lokinni kynningu tillaga Basalts arkitekta dags. 16. mars 2017 fh. lóðarhafa Bakkabrautar 8. Í tillögunni felst að breyta annari hæð í norðurhluta hússins í tvær íbúðir. Auk þess er sótt um að spennistöð verði færð á vesturhluta lóðar Hafnarbrautar 9-15, við lóðamörk Bakkabrautar 8. Uppdrættir í mkv. 1:100 ásamt skýringarmyndum dags. 16. mars 2017.
    Skipulagsráð samþykkti 20. mars 2017 með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna ofangreinda breytingu fyrir lóðarhöfum Bakkabrautar 5a, 5b, 5c, 5d, 5e, 7a, 7b, 7c, 7d, 6, 8, 10 og Hafnarbrautar 9, 11 og 13. Athugasemdafrestur var til 5. maí 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust.
    Lagt fram að nýju ásamt framkomnum athugasemdur og ábendingum og umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. maí 2017. Í umsögninni er lagt til að komið sé til móts við framkomnar athugasemdir varðandi spennistöð við lóðamörk Hafnarbrautar 13 - 15 og Bakkabrautar 8. Þá lögð fram tillaga Basalt arkitekta dags. 11. maí 2017 að breyttu yfirbragði hússins nr. 8 við Bakkabraut.
    Tillagan lögð fram að nýju með áorðnum breytingum dags. 15. maí 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Guðmundur Geirdal vék af fundi við afgreiðslu málsins.
    Niðurstaða Guðmundur Gísli Geirdal vék af fundi vegna vanhæfis við afgreiðslu málsins.

    Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.
  • 7.19 1103073 Kársneshöfn. Athafnasvæði. Vesturvör 38-50. Breytt deiliskipulag.
    Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs dags. 3. október 2016 að breyttu deiliskipulagi við Vesturvör 38 til 50. Í tillögunni er gert ráð fyrir að breyta lóðarmörkum Vesturvarar 38a og stækka lóðina úr 5.000 m2 í 8.900 m2, auka núverandi byggingarmagn úr 3.000 m2 í 12.000 m2 og færa byggingarreit til norðurs. Auk þess er gert ráð fyrir niðurgrafinni bílageymslu 6.800 m2 að stærð. Hámarks grunnflötur er áætlaður 3.600 m2. Mænishæð og hámarks vegghæð hækkar úr 10 metrum í 16 metra. Miðað er við 1 bílastæði á hverja 50 m2 húsnæðis eða um 240 stæði þar af um 200 stæði í niðurgrafinni bílageymslu.
    Lóðarmörk Vesturvarar 38b breytast og stækkar lóðin úr 5.000 m2 í 11.300 m2. Gert er ráð fyrir að auka núverandi byggingarmagn úr 3.000 m2 í 12.000 m2 og færa byggingarreit til norðurs. Auk þess er nú gert ráð fyrir niðurgrafinni bílageymslu 6.800 m2 að stærð. Hámarks grunnflötur er áætlaður 4.800 m2. Mænishæð og hámarks vegghæð hækkar úr 10 metrum í 27 metra. Miðað er við 1 bílastæði á hverja 50 m2 húsnæðis eða um 240 stæði þar af um 200 stæði í niðurgrafinni bílageymslu.
    Einnig er gert ráð fyrir að breyta lóðarmörkum Vesturvarar 40, minnka hana úr 11.700 m2 í 8.400 m2 með því að færa norðurlóðarmörk til suðurs um 50 metra og breyta heiti lóðarinnar í Vesturvör 40 til 42. Dregið er úr byggingarmagni sem ráðgert var 6.000 m2 í 5.000 m2 og byggingarreitur færður til suðurs. Hámarks grunnflötur er 3.900 m2. Miðað er við 1 bílastæði á hverja 100 m2 húsnæðis eða um 50 stæði.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir að breyta lóðarmörkum Vesturvarar 42-48, minnka hana úr 11.700 m2 í 9.000 m2 með því að færa norðurlóðarmörk til suðurs um 50 metra og breyta heiti lóðarinnar í Vesturvör 44 til 48. Dregið er úr byggingarmagni sem ráðgert var 6.000 m2 í 4.500 m2 og byggingarreitur færður til suðurs og rúmar hann þrjá innri byggingarreiti með mænisstefnur í austur ? vestur. Hámarks grunnflötur er 3.000 m2. Miðað er við 1 bílastæði á hverja 50 m2 húsnæðis eða um 90 stæði.
    Aðkoma að svæðinu er óbreytt en ný gata er lögð í framhaldi af Versturvör vestan við hús nr. 32 til 36 sem aðkoma að lóðunum nr. 40 til 50. Ekki er gert ráð fyrir að Vesturvör milli atvinnuhúsanna nr. 34 og 36 tengist húsagötunni við Vesturvör 38a og 38b.
    Skipulagssvæðið er óbyggt landfyllingarsvæði sem að stærsta hluta er búið að verja fyrir ágangi sjávar. Kantur sjóvarnar verður í kóta 5 en meðal hæð núverandi fyllingar er í kóta 4.2. Gert er ráð fyrir að hluta núverandi landfyllingar verði hækkuð í kóta 5.4.
    Byggingarreitur og lóðin að Vesturvör 50 er óbreytt.
    Heildar aukning fermetra í athafnahúsnæði er um 15.500 m2. Almennt er vísað í samþykkt deiliskipulag fyrir Vesturvör 38 til 50, birt í B- deild Stjórnartíðinda 30. nóvember 2012. Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:1000 dags. 3. október 2016. Tillagan var kynnt í samræmi við 1. mg. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. mars 2017. Auglýsing um breytinguna birtist í Fréttablaðinu 4. mars 2017 og í Lögbirtingablaðinu 7. mars 2017. Tillagan var jafnframt kynnt á almennum fundi í Kársnesskóla 29. nóvember 2016. Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum var til 25. apríl 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust frá Isavia dags. 5. maí 2017. Einnig barst erindi frá Reykjavíkurborg dags. 5. maí 2017 þar sem fram kemur að ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
    Þá lögð fram umsögn við framkomnar athugasemdir og ábendingar. Er umsögnin dags. 15. maí 2017. Í umsögninni kemur m.a. fram að laggt er til að komið sé til móts við innsendar athugasendir og ábendingar Isavia með því að skýra betur á deiliskipulagsuppdrætti að byggingarreitur Vesturvarar 38a og 38b fari ekki uppfyrir hindrunarflöt Reykjavíkurflugvallar.
    Tillagan lögð fram að nýju með áorðnum breytingu dags. 15. maí 2017.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir framlagað tillögu með áorðnum breytingum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

    Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
    "Undirrituð leggst gegn því að deiliskipuleggja norðvesturtá Kársnes, einvörðungu sem atvinnusvæði. Þar ætti að breyta aðalskipulagi og reisa blandaða byggð. Hér er ein fallegasta strandlengja höfuðborgarlandsins sem mikilvægt er að sem flestir fái notið."

    Bókun frá Theódóru Þorsteinsdóttur, Sigríði Kristjánsdóttur, Júíusi Hafstein, Guðmundi Gierdal, Kristni Degi Gissurarsyni, Andrési Péturssyni og Ármanni Kr. Ólafssyni:
    "Hér er verið að samþykkja deiliskipulag á lóðunum Vesturvör 38-40. Útfærsla svæðis suður og vestur af henni mun taka breytingum við síðari útfærslu á svæðinu."

    Margrét Júlía tekur undir þessa samþykkt og að tillögunni sé vísað áfram.

    Ása Richarsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni.
    Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum gegn atkvæðum Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurlaugar Kristínar Sævarsdóttur.
  • 7.20 17031299 Kársneshöfn. Bakkabraut 1 til 23, Nesvör 1 og Vesturvör 29 og 31. Svæði 8. Breytt deiliskipulag
    Lögð fram til tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 15. maí 2017 að breyttu deiliskipulagi Kársneshafnar sem samþykkt var í bæjarstjórn 23. janúar 1990. Skipulagssvæðið afmarkast af lóðarmörkum Vesturvarar 30 og 32 til norðurs, lóðarmörkum Bakkabrautar 6-16 til austurs, smábátahafnarinnar til suðurs og opnu bæjarlandi til vesturs.
    Svæðið sem er um 5 ha að stærð er hluti þróunarsvæðis Kársnes og nær til núverandi lóða Bakkabrautar 5, 7, 9 og Vesturvarar 29. Deiliskipulagssvæðið er sem svæði 8, reitir 1-7 í samþykktri skipulagslýsingu fyrir umrætt svæði.
    Í breytingunni felst að koma fyrir um 129 nýjum íbúðum á svæðinu, endurnýja hluta eldra athafnahúsnæði og reisa nýtt húsnæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir að núverandi athafnahúsnæði við Bakkabraut 9 verði rifið. Heildarbyggingarmagn á svæði 8 verður eftir breytingu um 25.000 m2 þar af um 11.000 m2 í verslun, þjónustu og athafnahúsnæði. Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum, greinargerð og skipulagsskilmálum dags. 15. maí 2017. Þá lögð fram greinargerðin Kársnes-Þróunarsvæði. Umhverfisskýrsla. Mannvit 12. maí 2017 og minnisblað Mannvits dags. 12. maí 2017 Deiliskipulag þróunarsvæðis á Kársnesi - svæði 8 - umhverfismál.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 8 Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga að kynna framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.

Önnur mál fundargerðir

8.1705450 - Fundargerð 374. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 05.05.2017

Fundargerð í 12. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

9.1705518 - Fundargerð 264. fundar stjórnar Strætó bs. frá 28.04.2017

Fundargerð í 6. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

10.1704022F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 87. fundur frá 02.05.2017

Fundargerð í 6. liðum.
Lagt fram.

Önnur mál fundargerðir

11.1705003F - Velferðarráð - 9. fundur frá 08.05.2017

Fundargerð í 10. liðum.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 18:30.