Bæjarráð

3207. fundur 06. mars 2025 kl. 08:15 - 10:47 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
Fundargerð ritaði: Pálmi Þór Másson bæjarritari
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2503135 - Kjarasamningur Kennarsambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga

Frá bæjarstjóra, lagt fram minnisblað varðandi nýja kjarasamninga við aðildafélög KÍ.
Umræður.

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar skrifstofu áhættu- og fjárstýringar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.2503189 - Erindisbréf innkaupanefndar

Lögð fram drög að erindisbréfi innkaupanefndar.
Umræður.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að erindisbréfi innkaupanefndar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

3.25022489 - Styrkbeiðni vegna verkefnisins sterkari út í lífið

Frá Sálfræðistofunni Höfðabakka, dags. 22.02.2025, lögð fram beiðni um styrk til verkefnisins Sterkari út í lífið.
Umræður.

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra velferðarsviðs og menntasviðs.

Ýmis erindi

4.25022445 - Vallarkór 12-14. Stúka við félagsvæði HK

Frá HK, dags. 25.02.2025. lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samtali við Kópavogsbæ varðandi stúku við félagssvæði HK.
Umræður.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fundarhlé hófst kl. 9:52, fundi fram haldið kl. 10:28

Bókun:
"Frumhönnun hefur verið kynnt í bæjarráði sem taka mið af þarfagreiningu bæjarins og HK.  Sviðsmynd sem horft er til var meðal annars unnið  af vinnuteymi skipuð af tveimur fulltrúum HK. Næsta skref er að funda með HK um áframhald verkefnisins. Mikilvægt er að ramminn liggur nú fyrir og hægt að stíga næstu skref. Samráð verður áfram haft við hagaðila á öllum stigum."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson


Bókun:
"Það er engan veginn tímabært að leggja af stað í jafn umfangsmikla framkvæmd og hér er lagt til nú í haust, sér í lagi þar sem ekki hefur verið samráð við HK eins og fram kemur í bréfi framkvæmdastjóra HK. Framkvæmd sem kostar milljarða króna þarf að undirbúa mun betur bæði hvað varðar þarfir Kópavogsbæjar og íþróttafélagsins. Forsendubreyting hefur orðið eftir þarfagreininguna 2023 með tilkomu Kóraskóla."

Bergljót Kristinsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir


Bókun:
"Viljayfirlýsing vegna stúkumannvirkis við Kórinn var undirrituð 2013 og er því löngu tímabært að Kópavogsbær standi við þær væntingar sem þar koma fram. Það hefur verið skýrt af hálfu meirihlutans. HK átti tvo fulltrúa í vinnuteymi þar sem unnin var ítarleg þarfagreining vegna stúkumannvirkisins og haft verður áfram samráð við HK við hönnun stúkunnar. Með nýrri stúku og keppnisvelli lýkur uppbyggingu á heildstæðu íþróttasvæði við Kórinn til hagsbóta fyrir Kópavogsbúa."

Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson

Ýmis erindi

5.2503193 - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga 2025

Frá Lánasjóði Sveitarfélaga ohf., dags. 04.03.2025, lagt fram fundarboð aðalfundar sem haldinn verður 20.mars kl. 16.00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Lagt fram.
Fylgiskjöl:

Fundargerðir nefnda

6.2502027F - Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 413. fundur frá 28.02.2025

Fundargerð í fjórum liðum.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

7.2502020F - Skipulags- og umhverfisráð - 4. fundur frá 03.03.2025

Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
  • 7.7 24032185 Kjóavellir- garðlönd. Breytt deiliskipulag.
    Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Kjóavalla. Í breytingunni felst að komið verði fyrir skólagörðum og garðlöndum fyrir efri byggðir Kópavogs á opna svæðinu OP-5.10. Áætlað svæði fyrir skólagarða og garðlönd er um 0,25 ha. Reiðleið sem liggur um opna svæðið norðan Markavegar færist nær fyrirhuguðum bílastæðum og meðfram henni að hluta til kemur mön sem skermir reiðleiðina frá opna svæðinu. Reiðleiðin sem liggur frá undirgöngum undir Vatnsendaveg og að Tröllakór verður að göngustíg sem heldur áfram um opna svæðið eins og núverandi göngustígar eru um svæðið. Stígur sem nær frá bílastæðum að suðurhluta íþróttahússins Kórsins verður aðgangsstýrður og hægt að aka á til að tryggja gott aðgengi stærri bíla að hleðsludyrum mannvirkisins þegar stórir viðburðir eru haldnir. Að öðru leyti er lokað fyrir almenna umferð um stíginn. Að undirgöng undir Markaveg verða tekin út og upphækkuð gatnaþrenging sett inn í staðinn. Ný reiðleið kemur sunnan megin meðfram Markavegi og göngustígur fellur út og hann aðeins hafður norðan megin meðfram Markavegi. Þverun með upphækkaðri gatnaþrengingu verður sett inn austar á svæði breytinga. Lóð fyrir fjarskiptamastur minnkar, fer úr 493 m² í 240 m². Fallið er frá lóð númer 2 við Heimsenda og 23 bílastæðum við enda lóðar nr. 1 við Heimsenda. Fyrirkomulag annarra bílastæða, gámasvæðis, reiðleiða, tamninga- og hringgerðis innan svæði breytinga breytist lítillega. Heildarfjöldi bílastæða á svæðinu helst óbreyttur í u.þ.b. 494 stæðum. Samhliða þessari breytingu breytast skipulagsmörk deiliskipulags Hörðuvalla- Tröllakórs til samræmis og aðlagast að gildandi deiliskipulagi Kjóavalla. Set- og miðlunartjörn helst óbreytt frá því sem nú er. Dreifistöð er bætt við uppdrátt eins og núverandi staða er á opna svæðinu OP-5.10.
    Uppdráttur í mkv. 1:2000 og dags. 28. júní 2024 og uppfærður 14. ágúst 2024 og 28. febrúar 2025.
    Niðurstaða Skipulags- og umhverfisráð - 4 Samþykkt að framlögð breyting á deiliskipulagi verði auglýst með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

8.2502025F - Menntaráð - 140. fundur frá 04.03.2025

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

9.25022594 - Fundargerð 598. fundar stjórnar SSH frá 10.02.2025

Fundargerð 598. fundar stjórnar SSH frá 10.02.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.25022595 - Fundargerð 599. fundar stjórnar SSH frá 17.02.2025

Fundargerð 599. fundar stjórnar SSH frá 17.02.2025
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11.25022492 - Fundargerð 31. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 24.02.2025

Fundargerð 31. fundar frá 24.02.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.25022596 - Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 14.02.2025

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 14.02.2025.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.2503038 - Fundargerð 970. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25.02.2025

Fundargerð 970. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25.02.2025.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 10:47.