Bæjarráð

3183. fundur 22. ágúst 2024 kl. 08:15 - 09:55 í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Fundinn sátu:
  • Orri Vignir Hlöðversson formaður
  • Hjördís Ýr Johnson varaformaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Hákon Gunnarsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, aðalmaður boðaði forföll og Indriði Ingi Stefánsson vara áheyrnarfulltrúi, sat fundinn í hans stað.
  • Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
Starfsmenn
  • Pálmi Þór Másson bæjarritari
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir bæjarlögmaður
  • Jóna Vigdís Kristinsdóttir starfsmaður stjórnsýlusviðs
Fundargerð ritaði: Ása A. Kristjánsdóttir bæjarlögmaður
Dagskrá

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

1.2312032 - Kársnesskóli

Staða framkvæmda við Kársnesskóla kynnt.
Kynning og umræður.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri umhverfisviðs - mæting: 08:15
  • Ármann Halldórsson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 08:15

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

2.24033565 - Endurnýjun gatnamóta. Fífuhvammsvegur við Dalveg og Reykjanesbraut

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 20.08.2024, lagt fram erindi þar sem óskað eftir heimild bæjarráðs til að hefja útboð á endurnýjun umferðarljósa, gatnagerð og lagna. Jafnframt óskar framkvæmdadeild eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2024 á hækkun liðnum 325102361 um 60 mkr.
Bæjarráð samykkir umbeðna heimild og viðauka fyrir sitt leyti og vísar viðaukanum til bæjarstjórnar.

Gestir

  • Ármann Halldórasson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 08:40

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

3.23021151 - Samgöngusáttmálinn - staðan og næstu skref

Samþykkt að taka inn á dagskrá fundarins með afbrigðum, uppfærðan samgöngusáttmála. Lagður fram til kynningar.
Kynning og umræður fóru fram. Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.

Gestir

  • Ásthildur Helgadóttir sviðstjóri umhverfissviðs - mæting: 08:50

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

4.24081185 - Smárinn og Fífan, Interfairs ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 19.08.2024, lögð fram umsögn um umsókn Interfairs ehf. um tækifærisleyfi vegna íslensku sjávarútvegssýningarinnar sem haldin verður dagana 18.-20. september í Fífunni.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði jákvæð umsögn með vísan í minnisblað lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

5.24072204 - Skemmuvegur 2A, óBarinn ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Frá lögfræðideild, lögð fram umsögn um umsókn óBarins ehf um rekstraleyfi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði jákvæð umsögn með vísan í minnisblað lögfræðideildar.

Fundargerðir nefnda

6.2408004F - Menntaráð - 130. fundur frá 20.08.2024

Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

7.2407001F - Skipulagsráð - 168. fundur frá 19.08.2024

Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
  • 7.5 24033581 Lyngheiði 20. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 22. mars 2024 þar sem umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um 30,4m² viðbyggingu á einni hæð við suðurhlið hússins. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,30.
    Kynningartíma lauk 23. júlí 2024. Engar athugasemdir bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 168 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
  • 7.6 24051469 Þinghólsbraut 53A. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
    Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 3. maí 2024 þar sem umsókn Ástríðar Birnu Árnadóttur dags. 16. apríl 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 53A við Þinghólsbraut um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst að byggja viðbyggingu, hækka þak, breytingar á innra skipulagi, bæta við gluggum á norður og vesturhlið í risi og svölum á vestur og suðurhlið.
    Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 12. apríl 2024.
    Kynningartíma lauk 22. júlí 2024. Engar athugasemdir bárust.
    Niðurstaða Skipulagsráð - 168 Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Niðurstaða Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

8.2406011F - Umhverfis- og samgöngunefnd - 175. fundur frá 20.08.2024

Fundargerð í fjórum liðum.
  • 8.3 2402718 Umhverfisviðurkenningar 2024
    Lagðar fram tilnefningar til umhverfisviðurkenningar Kópavogs fyrir árið 2024.
    Karen Jónasdóttir umhverfisfulltrúi gerir grein fyrir erindinu.
    Niðurstaða Umhverfis- og samgöngunefnd - 175 Umhverfis- og samgöngunefnd lagði mat á tillögur að umhverfisviðurkenningum og götu ársins 2024 og vísar niðurstöðum til bæjarstjórnar til staðfestingar. Niðurstaða Bæjarráð vísar niðurstöðum umhverfis- og samgöngunefndar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

9.24081176 - Fundargerð 47. eigendafundar stjórnar Strætó frá 20.03.2024

Fundargerð 47. eigendafundar stjórnar Strætó frá 20.03.2024.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10.24081178 - Fundargerð 48. eigendafundar stjórnar Strætó frá 03.04.2024

Fundargerð 48. eigendafundar stjórnar Strætó frá 03.04.2024.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11.24081205 - Fundargerð 12. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 14.08.2024

Fundargerð 12. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 14.08.2024.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12.24081209 - Fundargerð 48. eigendafundar Sorpu bs. 01.07.2024

Fundargerð 48. eigendafundar Sorpu bs. 01.07.2024.
Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13.24081525 - Fundargerð 581. fundar stjórnar SSH þann 19. ágúst 2024

Fundargerð 581. fundar stjórnar SSH þann 19. ágúst 2024.
Lagt fram.

Önnur mál

14.24081203 - Tekjuskattsundanþága byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs.

Frá SSH, dags. 16.08.2024, lagt fram erindi varðandi tekjuskattsundanþágu byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar og óskar eftir því að fulltrúar Sorpu mæti til fundarins.

Önnur mál

15.2402732 - Þjóðlendumál - Eyjar og sker

Frá óbyggðanefnd, dags. 29.08.02024, lögð fram tilkynning um kröfulýsingarfrest landeigenda vegna eyja og skerja.
Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

16.24081507 - Fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar varabæjarfulltrúa Pírata um skipulag og tímasetningar nefndar funda.

Frá varafulltrúa Pírata í bæjarráði, lögð fram fyrirspurn um skipulag og tímasetningar nefndar funda.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara.

Erindi frá bæjarfulltrúum

17.24081509 - Fyrirspurn Indriða Inga Stefánssonar vara bæjarfulltrúa Pírata um ástæðu vöntunar á fundargögnum með fundargerðum.

Frá varafulltrúa Pírata í bæjarráði, lögð fram fyrirspurn varðandi fylgigögn með fundargerðum.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara.

Fundargerðir nefnda

18.2402718 - Umhverfisviðurkenningar 2024

Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar niðurstöðu Umhvefis- og samgöngunefndar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 09:55.