Þinghólsbraut 53A

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 3. júní 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 53A við Þinghólsbraut.

Í breytingunni felst að byggja viðbyggingu, hækka þak, breytingar á innra skipulagi, bæta við gluggum á norður og vesturhlið í risi og svölum á vestur og suðurhliðAthygli er vakin á því að meðfylgjandi uppdrættir eru ekki í réttum mælikvarða en eru aðgengilegir á vef Kópavogsbæjar og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 773/2024, eigi síðar en 22. júlí 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Þinghólsbraut 53A
Tímabil
18. júní - 22. júlí 2024