Lyngheiði 20

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 21. maí 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Lyngheiði.

Sótt er um 30,4m² viðbyggingu á einni hæð við suðurhlið hússins. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,30.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 775/2024, eigi síðar en 23. júlí 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Lyngheiði 20
Tímabil
19. júní - 23. júlí 2024