Göngu- og hjólastígar um Kópavogsháls. Nýtt deiliskipulag.

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er tillaga að nýju deiliskipulagi hér með auglýst.

 

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 18. júlí að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að nýju deiliskipulagi göngu- og hjólastígs um Kópavogsháls.


Skipulagssvæðið nær til bæjarlands milli Hafnarfjarðarvegar og aðlægra lóða vestan megin vegarins. Frá Skjólbraut í norðri að undirgöngum undir Hafnarfjarðarveg við Kópavogsdal í suðri, um 600 metra vegalengd. Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að mæla fyrir um legu og fyrirkomulag stofnstígs hjólreiða um Kópavogsháls og stuðla að auknu umferðaröryggi, sérstaklega gangandi og hjólandi vegfarenda. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum aðskildum hjólastíg samsíða núverandi göngustíg.

 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna.

Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr.
583/2024, eigi síðar en 23. september 2024.

 

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Göngu- og hjólastígar um Kópavogsháls. Nýtt deiliskipulag.
Tímabil
19. júlí - 23. september 2024