Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Vakin er athygli á að nú stendur yfir í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 forkynning á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf. Tillögunni fylgir m.a. umhverfisskýrsla sem unnin er sameiginlega fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs.
Breytingar á aðalskipulagi eru gerðar í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í tillögunni að aðalskipulagsbreytingu er afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðarsvæði (ÍB-6), opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem staðsetning minjasvæðis er leiðrétt. Skilgreiningin „tengibraut“ á Kambavegi að og frá hverfinu (ÍB-6) er felld niður.
Fimmtudaginn 8. desember 2022 milli 15:00-17:00 verður opið hús á bæjarskrifstofum Kópavogs að Digranesvegi 1 þar sem ofangreind tillaga á vinnslustigi að breytingu á aðalskipulagi fyrir Vatnsendahvarf verður kynnt þeim sem þess óska.
Tillagan er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 á opnunartíma. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 11. janúar 2023.
Skipulagsfulltrúi Kópavogs.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.