Umsókn um framkvæmdaleyfi. Fífuhvammsvegur við Dalveg og Reykjanesbraut

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 6. maí 2024 lögð fram að nýju umsókn framkvæmdadeildar dags. 25. mars 2024 um framkvæmdaleyfi skv. 5. mgr. 13. gr. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir endurnýjun þriggja gatnamóta á Fífuhvammsvegi við Dalveg og Reykjanesbraut.

Skipta þarf út eldri umferðarljósabúnaði fyrir nýrri ljósastýrðum. Um er að ræða óveruleg frávik við breytingar á gatnamótum án þess að gerðar séu breytingar á akstursefnum. Framkvæmdirnar eru umferðartæknilegar endurbætur á gatnamótum í þágu bætts umferðaröryggis og flæðis.

Bókun skipulagsráðs:
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um framkvæmdaleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum
lóðanna nr. 1, 3 og 9 við Hagasmára.

 

Fyrirhugað er að framkvæmdir hefjist í lok sumars 2025 og ljúki um haustið 2025. Verkefnið er áfangaskipt sbr. teikningu „vinnustaðamerkingar Áfangi 1 dags. 05.04.2024 og ekki er talið að loka þurfi gatnamótum í heild á framkvæmdatíma.
Lóðarhöfum verði tilkynnt um nánar um tímasetningar þegar þær liggja fyrir.

Sótt er um framkvæmdaleyfi til eins árs.

 

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 604/2024, eigi síðar en 26. júní 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

 

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Umsókn um framkvæmdaleyfi. Fífuhvammsvegur við Dalveg og Reykjanesbraut
Tímabil
24. maí - 26. júní 2024