Tónahvarf 4

Grenndarkynning

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 6. maí 2024 var lögð fram tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Vatnsendahvarfs- athafnasvæði. Svæði 3. Í breytingunni felst að lóðarmörkum Tónahvarfs 4 verður breytt og stofnuð verði ný lóð innan núverandi lóðarmarka Tónahvarfs 4, nýja lóðin mun vera númer 4A. Þar verður komið fyrir 24 m háu fjarskiptamastri. Kvöð um aðkomu að lóð 4A verður um lóð Tónahvarfs 4. Fyrirkomulag bílastæða Tónahvarfs 4 mun breytast en bílastæðafjöldi helst óbreyttur. Viðmið um fjölda bílastæða er 1 stæði fyrir hverja 50 m² atvinnuhúsnæðis. Bílastæði verði nánar útfærð við hönnun. Lóð Tónahvarfs 4 fer úr 4823 m² í 4566 m² og nýtingarhlutfall fer úr 0,6 í 0,64. Byggingarmagn helst óbreytt. Ný lóð Tónahvarfs 4A verður 257 m² og gert er ráð fyrir einu bílastæði og athafnasvæði innan lóðar.

Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 3. maí 2024, uppfærður 7. maí 2024.

Bókun skipulagsráðs:
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 2-12 við Tónahvarf og 2, 2A, 4, 6 og 8 við Turnahvarf.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 727/2024, eigi síðar en 11. júlí 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Tónahvarf 4
Tímabil
10. júní - 11. júlí 2024