Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breyttu á deiliskipulagi í Kópavogi.
Á fundi skipulagsráðs 29. mars 2021 var lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts dags. 26. mars 2021 fh. lóðarhafa Þorrasala 37. Í breytingunni felst að byggingarreitur þegar samþykktrar viðbyggingar stækkar um 22 m2 og á suðurhlið hússins verður reist viðbygging á 1 hæð, samtals 18 m2. Að auki er gert ráð fyrir nýju anddyri við hlið þess sem nú er, samtals um 15 m2. Byggingarmagn eykst úr 392 m2 í 447 m2, nýtingarhlutfall fer úr 0,53 í 0,60. Uppdráttur í mkv.1:500 og 1:1000 dags. 26. mars 2021.lagt fram erindi Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. apríl 2021 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 10 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í breytingu felst að byggingarreitur breytist lítillega og stækkar um 40 cm. til suðurs og 60 cm. til norðurs. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Auðbrekku þróunarsvæðis, Nýbýlavegur 2-12 sem samþykkt var í bæjarstjórn 22. september 2020 og birt í b- deild stjórnartíðinda 4. desember 2020. Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 19. apríl 2021.
Með vísan til 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:
Þorrasala 6, 8, 10, 35, Þrúðsala 18 og bæjaryfirvöldum í Garðabæ.
Kynning hefst þann 26. apríl 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 miðvikudaginn 26. maí 2021.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.