Rammahluti aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi. Lýsing skipulagsverkefnis.

Í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er lýsing á skipulagsverkefni hér með kynnt.

Vakin er athygli á því að nú stendur yfir í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kynning á lýsingu skipulagsverkefnis (skipulagslýsing) vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 vegna rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi.

Skipulagssvæðið nær yfir þróunarsvæði ÞR-1, sem skilgreint er í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 ásamt aðliggjandi svæðum. Svæðið afmarkast af strandlínu Kársness til norðurs og vesturs og af núverandi íbúðarbyggð við Þinghólsbraut, Kársnesbraut og Huldubraut austurs og suðurs. Alls er skipulagssvæðið um 57,2 ha.

Rammaskipulag fyrir vestanvert Kársnes snýr einkum að áframhaldandi þróun svæðisins með sérstakri áherslu á góðar samgöngutengingar m.a. fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og almenningsrými.

Í skipulagslýsingunni er gerð grein fyrir þeim áherslum sem verða í komandi skipulagsvinnu, forsendum og fyrirliggjandi stefnu sem skipulagið byggir á, umfangi umhverfismats og fyrirhuguðum kynningum og samráði við skipulagsgerðina.

Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru boðaðir til samráðsfundar um svæðið fimmtudaginn 23. maí 2024 milli kl. 16:30-18:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju að Hábraut 1.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér ofangreinda skipulagslýsingu.

Athugasemdum og ábendingum skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 580/2024, eigi síðar en 19. júní 2024.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um skipulagslýsinguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Rammahluti aðalskipulags fyrir þróunarsvæði á vestanverðu Kársnesi. Lýsing skipulagsverkefnis.
Tímabil
15. maí - 19. júní 2024