Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Grenndarkynning.
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 20. nóvember 2023 var lögð fram umsókn Emils Þórs Guðmundssonar byggingarverkfræðings dags. 17. nóvember 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bollasmára um breytingu á deiliskipulagi.
Í gildandi deiliskipulagi er ein íbúð á tveimur hæðum heimiluð á lóðinni og heildarbyggingarmagn 308,6 m². Í breytingunni felst að neðri hæð hússins verði stækkuð til vesturs um 11 m² undir nýja útbyggingu efri hæðar, sem samþykkt var 2020. Byggingarmagn eykst úr 308.6 m² í 320m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0.45 í 0.46.
Uppdrættir í mkv. 1:200, 1:500 og 1:1000 dags. 16. nóvember 2023 ásamt minnisblaði skipulagsdeildar dags. 17. nóvember 2023.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðarnna nr. 1-9 við Bollasmára og 1, 3, 5, 7 og 9 við Brekkusmára.
Athugasemdum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 933/2023, eigi síðar en miðvikudaginn 3. janúar 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Umhverfissvið, skipulagsdeild Kópavogs, notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.
Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn bæjarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.