Verklag

Verklag vegna óskar um endurupptöku ákvörðunar

1. gr. 

Heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds innan 28 daga frá dagsetningu álagningar. Almennur afgreiðslutími er 2 til 4 vikur. Eingöngu er tekið við óskum um endurupptöku á þar til gerðri vefsíðu.

2. gr.

Þegar aðili máls er annar en skráður eigandi/umráðamaður bifreiðar einfaldar það afgreiðslu að nafn, kennitala, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang liggi fyrir. Sé aðili máls eigandi/umráðamaður ökutækis einfaldar það afgreiðslu að símanúmer og tölvupóstfang liggi fyrir.

3. gr.

Bílastæðasjóður getur aflað staðfestingar á þeim upplýsingum sem koma fram í ósk um endurupptöku ákvörðunar. Upplýsingar geta m.a. verið sóttar í þjóðskrá, ökutækjaskrá og kortavef allt eftir eðli máls hverju sinni.

4. gr.

Bílastæðasjóður getur aflað upplýsinga hjá sýslumönnum vegna útgáfu og gildistíma stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða. Mikilvægt er að nafn og kennitala handhafa stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða liggi fyrir sé það annar en skráður eigandi/umráðamaður bifreiðar.

5. gr.

Bílastæðasjóður leitar eftir umsögn álagningaraðila og nýtir ljósmyndir af vettvangi við endurupptöku ákvörðunar um álagningu.

6. gr.

Þegar óskað er endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds sem lögreglan hefur lagt á ökutæki verður erindið áframsent Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu til afgreiðslu.

7. gr.

Þegar ósk um endurupptöku hefur borist tekur álagningin áfram lögbundnum hækkunum skv. umferðarlögum á meðan þau eru í vinnslu. Við afgreiðslu máls fellur gjaldið niður sé erindið samþykkt en sé erindinu hafnað fær greiðandi staðfestingu um það í tölvupósti og upphæð helst óbreytt frá þeim degi. Aðilum er bent á að þeir eiga þess kost að greiða gjaldið þrátt fyrir ósk um endurupptöku og fá það endurgreitt ef fallist er á beiðni þeirra um niðurfellingu gjaldsins.

 

Til baka

Síðast uppfært 15. febrúar 2021