Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Foreldrar barna á aldrinum 15-30 mánaða geta sótt um heimgreiðslur vegna barna sem hvorki eru í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla.
Skilyrði er að barn sé með lögheimili í Kópavogi, njóti ekki annarra niðurgreiðslna frá Kópavogsbæ vegna dvalar barnsins og sé ekki í vistun hjá dagforeldri eða í leikskóla.
Sækja þarf um heimgreiðslur vegna barns í Þjónustugátt Kópavogsbæjar. Umsókn um heimgreiðslur þarf að berast fyrir 20. dag mánaðar til þess að taka gildi frá og með næstu mánaðamótum á eftir. Aðeins þarf að sækja um heimgreiðslur einu sinni. Heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.
Mánaðarleg heimgreiðslur eru greiddar eftir á og er 107.176 kr. á mánuði. Heimgreiðslur fást að hámarki greiddar í 11 mánuði á ári, ekki er greitt vegna júlí mánaðar. Upphaf heimgreiðslna reiknast í fyrsta lagi frá þeim degi sem barn verður 15 mánaða.
Greiðslur falla niður þegar barn hefur dvöl í leikskóla eða hjá dagforeldri með starfsleyfi, ef dvöl í leikskóla er hafnað vegna barna sem eru 30 mán. eða eldri eða við flutning á lögheimili barnsins úr sveitarfélaginu.