Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Grenndarkynning.
Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 18. mars 2024 var lögð fram umsókn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 13. mars 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að komið verði fyrir á lóðinni tveimur færanlegum skrifstofueiningum á tveimur hæðum alls 115 m² að flatarmáli, suðvestan við núverandi tengibyggingu íþróttahúss. Hámark byggingarmagns verður 10.315 m² eftir breytingu.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 1 og 7 við Dalsmára.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 464/2024, eigi síðar en þriðjudaginn 28. maí 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is
Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.