665-13.jpg
Forsíða arrow Þjónusta arrow Félagsþjónusta arrow Fatlaðir arrow Ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta PDF Prenta Rafpóstur

Fyrir hverja?
Ferðaþjónusta fatlaðra, sbr. lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992, er fyrir þá íbúa sem geta ekki notað almenningsvagna og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Sérútbúnir bílar eru notaðir í ferðaþjónustunni til að geta ekið fólki sem notar hjólastóla.

Hvernig er sótt um?
Skila þarf skriflegri umsókn á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má í afgreiðslu. Læknisvottorð þarf ávallt að fylgja umsókn til að staðfesta fötlun umsækjanda eða skort á getu hans til að ferðast í strætó. Í umsókn þurfa að koma fram ástæður fyrir umsókn, svo og óskir um fjölda ferða.

Hversu margar ferðir eru í boði?
Samkvæmt reglum er hámarksfjöldi ferða 68 í mánuði og hafa ferðir í vinnu og skóla forgang.

Ferðum er úthlutað þrisvar sinnum á ári, í janúar, maí og september, til fjögurra mánaða í senn.

Hvernig er greitt fyrir ferðaþjónustu?
Gjald fyrir hverja ferð miðast við helming af fargjaldi Almenningsvagna. Gjaldið er innheimt með gíróseðli um hver mánaðarmót.

Hver hefur eftirlit og umsjón með ferðaþjónustu fatlaðra?
Félagsráðgjafar í þjónustudeild fatlaðra sjá um að meta umsóknir og úthluta ferðum. Upplýsingar um afgreiðslu umsóknar eru sendar til umsækjenda. Verktakinn sem sér um aksturinn fær síðan upplýsingar um heildarúthlutun viðkomandi og lýsingu á fötlun til að geta veitt viðeigandi aðstoð.

Mikilvægar upplýsingar fyrir farþega ferðaþjónustunnar

Samantekt starfshóp um ferðaþjónustu fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu

Bæklingur um ferðaþjónustu fatlaðra
Bæklingur um aðra ferðaþjónustu
Reglur um ferðaþjónustu í Kópavogi

Umsókn um ferðaþjónustu fatlaðra

Þjónustukönnun 2005 - Skýrsla
Þjónustudeild fatlaðra

 
< Fyrri   Næsti >