Hjá Kópavogsbæ er lögð rík áhersla á að veita íbúum eins góða þjónustu og mögulegt er hverju sinni. Þjónustuver Kópavogsbæjar er til húsa á Digranesvegi 1.
Starfsmenn þjónustuvers leggja metnað sinn í að svara fyrirspurnum um öll svið í starfsemi bæjarins. Í þjónustuverinu er boðið upp á alla almenna þjónustu við íbúa bæjarins. Verkefnin eru meðal annars:
- Símsvörun
- Öll almenn þjónusta við viðskiptavini og starfsmenn bæjarins
- Upplýsingagjöf um starfsemi bæjarins
Þar má finna ýmis eyðublöð og ítarefni um tiltekna þjónustu.
Sími Þjónustuversins er 441 0000.
Þjónustuverið er opið mánudaga - fimmtudaga frá kl. 08:00 - 16:00
og frá kl. 08:00 -13:00 á föstudögum.
Fyrir þá sem ekki komast á staðinn er hægt er að hafa samband við þjónustufulltrúa í gegnum samskiptaleiðir hér til hliðar.