Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Vegna lóða í eigu Kópavogsbæjar eru gerðir lóðarleigusamningar til 50 ára, sem eru undirritaðir af þinglýstum lóðarhöfum og bæjarstjóra.
Lóðarleigusamningur byggir á réttri skráðri stærð lóðar, skv. mæliblaði. Í eldri byggð bæjarins er víða þörf á endurnýjun lóðarleigusamninga, sem þinglýstir lóðarhafar undirrita, ásamt kaupanda ef um sölu eignar er að ræða.
Almennt eru ekki takmarkanir á því að endurnýja lóðarleigusamninga, nema bæjarstjórn ákveði vegna skipulags eða öðrum ástæðum aðra notkun á viðkomandi lóð. Gildur lóðarleigusamningur þarf að vera til staðar, við afsal eignar.