22.04.2025 kl. - Bókasafn Kópavogs
Umhverfis ofurhetjan er vitundarvakningarverkefni sem er samstarfsverkefni Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem börn geta leyst fimm umhverfistengd verkefni og að því loknu fá þau afhent viðurkenningar skjal um að þau séu umhverfis ofurhetjur.
Einnig fá þau fræ í verðlaun sem þau geta gróðursett heima. Verkefnið mun svo standa fram á haust.
Hægt er að velja 5 af eftirfarandi atriðum, sum þeirra eru verkefni sem öll fjölskyldan vinnur saman, og sum eru árstíðarbundin.
Þegar barnið hefur klárað 5 verkefni getur það komið á safnið og fengið skjalið og verðlaunin afhent annað hvort í barnadeild eða hjá starfsmanni náttúrufræðistofu:
Taka bók á bókasafninu um náttúruna og náttúruvísindi t.d. dýr, gróður, himingeiminn og lesa heima eða fá einhvern til að lesa fyrir sig.
Skoða vandlega náttúrufræðisýninguna í Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Fara með einhverjum fullorðnum á endurvinnslustöð eða í grenndargám með flokkað rusl og efni.
Plokka, fara með einhverjum fullorðnum og týna upp rusl úr náttúrunni. (Athuga að vera með hanska, og fara varlega og rólega í verkefnið og ræða fyrir fram um að passa sig að taka ekki upp neitt oddhvasst eins og nálar og glerbrot).
Fá fjölskylduna sína til að elda eina máltíð úr frystinum.
Borða afganga.
Fá fjölskylduna til að elda eina grænmetismáltíð (kjöt og fiskvinnsla skilur eftir sig stórt kolefnisfótspor, og það að borða einu sinni í viku grænmetismáltíð er mjög gott fyrir umhverfið)
Velja að gefa fremur upplifun eða notaða gjöf í afmælis- eða tækifærisgjöf. Taka virkan þátt í hringrásarhagkerfinu, gefa, selja eða kaupa notaða hluti frekar en nýja.
Labba einu sinni eitthvert sem þið farið venjulega á bíl.
Búa til pödduhótel í garðinum.
Leyfa túnfíflunum að vera í garðinum (ekki tína þá, ekki slá þá) en þeir eru nauðsynleg næring fyrir fyrstu skordýrin á vorin.
Planta birkitré (birki er eina skógmyndandi tegundin í íslensku flórunni og birkiskógar eru fjölbreytt vistkerfi þar sem fjöldi lífvera lifir í samlífi hver við aðra.)
Umhverfisverkefni að eigin vali
13.06.2025 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs
Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us.
Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone!
These meet ups are a part of the project The library in a multilingual society sponsored by Nordplus and Bókasafnasjóður.
Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi.
Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs.
Við munum bjóða upp á kaffi og með því!
Þessi viðburður er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölþjóðlegu umhverfi sem er styrkt af Nordplus og Bókasafnasjóði.
14.06.2025 kl. 15:00 - Gerðarsafn
Verið hjartanlega velkomin á leiðsögn um sýningu Guðrúnar Bergsdóttur með Berglindi Ernu Tryggvadóttur myndlistarmanni og kennara laugardaginn 14. júní kl. 15:00 í Gerðarsafni.
Guðrún Bergsdóttir skapaði á jaðrinum, starfaði í hliðarsenu íslenskrar myndlistar. En hún steig samt sem áður nokkur mikilvæg spor yfirstóra þröskulda inn í stóru söfnin og á aðalsviðin, mest að tilstuðlan hátíðarinnar List án landamæra. Guðrún sýndi margoft á hátíðinni og var valin heiðurslistamaður hennar árið 2011. En þó að Guðrún hafi verið staðsett á jaðrinum töluðu verk hennar inn í hjörtu ófárra myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist sem fundu undur og innblástur í verkunum. Í starfi óhefts huga sem lagði ekki upp með að brjóta reglurnar heldur bjó til sínar eigin. Þannig setja 64 útsaumsverk mark sitt á íslenska listasögu þótt þau hafi orðið til í frelsi frá henni.
Guðrún saumaði út. Hún skissaði ekki myndina upp áður heldur saumaði einfaldlega beint út í strammann, hugur leiddi út í hönd. Hún saumaði meðal annars á ferðum sínum með strætó og í kaffipásum sínum í vinnunni sem skilur eftir sér sterka mynd í hugskoti. Af hinum ötula listamanni sem þarf ekki hina fullkomnu aðstöðu eða tíma, heldur finnur kannski einmitt hugarró í því að skapa verkin. Útsaumur er miðill þolinmæði, hinna smáu spora sem safnast saman. Áður vann Guðrún tússmyndir þar sem tússsporin eru ekki ósvipuð saumsporunum en í hennar meðförum fá eiginleikar tússlitarins að njóta sín, hvernig hann markar alltaf hverja stroku og er varhugaverður í festunni sem hann markar pappírinn með. Báðir þessir miðlar eru í senn hefðbundnir og á jaðrinum, sköpunartól sem Guðrún beitir meðólíkri snerpu, frá hraðvirkni til nosturs. Þau bera þó með sér sömu nákvæmni og natni þar sem form umbreytast í lífrænan munsturtakt. Verkin gætu kveikt löngun í fólki til að strjúka þeim varlega og syngja fyrir þau. En ekki snerta verkin. Leyfið þeim að snerta ykkur.
15.06.2025 kl. 11:00 - Náttúrufræðistofa Kópavogs
Í tilefni af samnorrænum degi hinna villtu blóma, sem haldinn er þriðja sunnudag í júní, bjóða Náttúrufræðistofa Kópavogs, Grasagarður Reykjavíkur, Náttúruminjasafn Íslands og Flóruvinir upp á göngu um Borgarholtið í Kópavogi. Í göngunni fræðumst við um gróður svæðisins og greinum plöntur sem verða á vegi okkar.
Gangan hefst fyrir framan Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 11 þaðan sem haldið verður út í holtið til að skoða það sem fyrir augu ber. Þau sem eiga flórubækur eru hvött til að hafa þær meðferðis.
Viðburðurinn hentar ungum sem öldnum og er frábært tækifæri fyrir fjölskyldur til að njóta náttúrunnar á sunnudegi.
Borgarholt er merkilegt fyrir margar sakir en er það friðlýst náttúruvætti í Kópavogi vegna sjaldgæfra jarðmyndana. Gróðurfar á holtinu einkennist af dæmigerðum holta- eða mólendisgróðri með nokkrum litlum votlendisblettum. Vert er að minnast á að hér er um að ræða villtan gróður inni í miðri byggð, sem hefur orðið fyrir tiltölulega litlum áhrifum af búsetu manna og eru skráðar 124 háplöntutegundir á svæðinu, þar á meðal sjaldgæfar tegundir eins og gullkollur og blátoppa. Gróðurfar í Borgarholti hefur því hátt verndargildi sem villtur gróður í þéttbýli.
Aðgangur er ókeypis!Öll hjartanlega velkomin!
15.06.2025 kl. 12:00 - Gerðarsafn
Í tilefni af samnorrænum degi hinna villtu blóma verður blómasmiðja í Gerðarsafni sunnudaginn 15. júní frá kl. 12:00 - 14:00. Jóhanna Ásgeirsdóttir myndlistarmaður og kennari heldur utan um smiðjuna.
Ganga um Borgarholtið í Kópavogi hefst fyrir framan Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 11 þaðan sem haldið verður út í holtið til að skoða það sem fyrir augu ber. Síðan er tilvalið að koma inn í Gerðarsafn og skapa falleg blómalistaverk!
Aðgangur er ókeypis í gönguna og á smiðjuna.
16.06.2025 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs
Ertu byrjandi eða með áralanga reynslu af bróderíi? Viltu kannski rifja upp gamla takta og hitta aðra sem deila sama áhuga?
Þá gæti Bróderíklúbburinn hentað fyrir þig.
Bróderíklúbburinn hittist á mánudögum á Lindasafni í Núpalind 7 kl. 14:00.
Öll velkomin og heitt á könnunni.
17.06.2025 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs
Haldið verður upp á 17. júní með glæsibrag í Kópavogi og er boðið upp á dagskrá á nokkrum stöðum í bænum. Skemmtidagskrá er bæði á Rútstúni og við Versali frá tvö til fjögur en leiktæki og hoppukastalar opna klukkan tólf. Einnig er dagskrá við Menningarhús bæjarins.
Dagskrá 17. júní í Kópavogi
10.00: Kópavogsvöllur: 17.júní hlaup frjálsíþróttadeildar Breiðabliks fyrir börn í 1.til 6. bekk.
12.00-17.00: Rútstún og Versalir: Hátíðarsvæði opin með hoppukastölum, leiktækjum og andlitsmálun.
13.30: MK: Skrúðganga með skólahljómsveit Kópavogs og Skátunum í broddi fylkingar hefst frá MK og lýkur Á Rútstúni.
13.30.-16.00: Menningarhúsin í Kópavogi, útisvæði: BMX Brós koma fram kl. 13.30. Einnig koma fram Hringleikur, Krakkahestar og skapandi sumarstörf. Þá er Hjálparsveit skáta með tækjasýningu við menningarhúsin.
14.00-16.00: Skemmtidagskrá á Rútstúni: Fram koma fjallkona Kópavogs, Bríet, Aron Can, Bógómil Font, Leikhópurinn Lotta og Bestu lög barnanna. Kynnar: Gunni og Felix.
14.00-16.00: Skemmtidagskrá við Versali: Fram koma Bríet, Aron Can, Bógómil Font, Leikhópurinn Lotta og Bestu lög barnanna. Kynnar: Saga Garðars og Snorri Helga.
18.06.2025 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs
Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is
Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
18.06.2025 kl. 15:00 - Bókasafn Kópavogs
Alla miðvikudaga í sumar bjóðum við upp á sumarsmiðjur bæði á aðalsafni í Hamraborg 6a og Lindasafni í Núpalind 7 kl. 15:00-17:30, þar sem Gloría bókasafnskisa verður í sviðsljósinu.
Komdu og búðu til kisugrímur, kisubókamerki, dýrafígúrur, kort, litaðu skemmtilegar söguhetjur eða taktu þátt í lista- og náttúrusmiðju Náttúrufræðistofu. Smiðjurnar verða rúllandi og mun hver smiðja bjóða upp á eitthvað af ofantöldu.
Þá verður umhverfisofurhetjan í gangi í allt sumar þar sem börn geta leyst umhverfistengd verkefni og fengið verðlaun.
Sumarlesturinn verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Lindu landnámshænu.
19.06.2025 kl. 17:00 - Salurinn
Í sumar býður Salurinn gestum sínum enn og aftur í ljúfa tónlistarupplifun í forsal Salarins, en að þessu sinni undir nýju nafni – Sumartónar í Salnum.
Sumartónar í Salnum eru í anda Sumardjazz tónleikaraðarinnar sem Salurinn hefur boðið upp á undanfarin sumur og slegið hefur rækilega í gegn. Með nýju sniði bjóðum upp á fjölbreyttari tónlistarupplifun þar sem fleiri tónlistarstefnur fá að njóta sín.
Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní og júlí kl. 17:00-18:00.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Léttar veitingar verða til sölu.
Sjáumst í sumarfíling í Salnum!
---
Mikið hlakkar mig til að spila hjá ykkur í Salnum Kópavogi - einn af mínum uppáhalds. Þetta verða heimilislegir tónleikar, verð frammi - semsagt ekki inn í sal. Ég mæti með gítarinn og nikkuna og spila öll mig bestu lög, kósý og næs. Sjáumst eldhress.
Kveðja, Mugison
20.06.2025 kl. 11:00 - Bókasafn Kópavogs
Get Together meet-ups will be held at the Library in Kópavogur, on the first floor in the Tilraunastofa - meeting room. The meet-ups are international meetings open to refugees, asylum-seekers, immigrants, and anyone seeking companionship. Whether you're a family or an individual, you're welcome to join us.
Each week, we gather and do relaxing activities like painting, weaving, crafting, and more. It's all about getting together, making new friends, and sharing stories in a warm, supportive space.Get Together meet-ups are a collaboration between GETA aid organization and the Library in Kópavogur.We offer free coffee and treats for everyone!
These meet ups are a part of the project The library in a multilingual society sponsored by Nordplus and Bókasafnasjóður.
Get Together heldur alþjóðlegan fjölskyldu- og vinahitting á Bókasafni Kópavogs, á fyrstu hæð í Tilraunastofunni. Þetta er alþjóðlegur hittingur fyrir flóttafólk, hælisleitendur, innflytjendur og öll sem vilja félagsskap.Viðburðurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga.
Í hverri viku munum við hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman eins og að mála, prjóna, föndra o.fl. Í Get together hittum við nýja vini og deilum sögum okkar í þægilegu og öruggu umhverfi.
Get Together er samstarfsverkefni milli GETA hjálparsamtök og Bókasafn Kópavogs.
Við munum bjóða upp á kaffi og með því!
Þessi viðburður er hluti af verkefninu Bókasafnið í fjölþjóðlegu umhverfi sem er styrkt af Nordplus og Bókasafnasjóði.
21.06.2025 kl. 13:00 - Gerðarsafn
List og náttúra er einföld smiðja þar sem leitast er við að skapa list úr náttúrulegum efnivið.
Smiðja verður í Náttúrufræðistofu Kópavogs og jafnvel utandyra ef veður leyfir.
Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með náttúrulegan efnivið undir leiðsögn myndlistarkennara og skapa eigið listaverk.
Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi. Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.
Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.Hlökkum til að sjá ykkur!
//
Welcome to the workshop Art and nature in the Natural History Museum in Kópavogur. Once each month there will be a simple workshop for children in the Natural History Museum in collaboration with the Gerðarsafn in Kópavogur. The aim is to create time and space for families to be together after school.The them is connected to nature where the subject viewed through art.The workshops are great for ages 3 to 8 years old.We look forward to seeing you!