- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að veita Fjarskiptum hf. heimild að koma fyrir tækjahúsi og fjarskiptamastri á lóðinni Austurkór 77a.
Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindi Bónax ehf.
Bæjarráð samþykkir með vísan til framlagðra gagna, þar með talinn fyrirvara í verksamningi, að stöðva framkvæmdir við gatnagerð í Vatnsendahlíð. Innan þriggja mánaða verði staðan endurmetin.
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirrituð minnir á umræðu í bæjarstjórn frá 8. október sl. þar sem fulltrúar Samfylkingarinnar settu fyrirvara við gatnagerð í Vatnsendahlíð sökum réttarlegrar óvissu.
Guðríður Arnardóttir"
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Meðal annars af þeim sökum voru ríkari fyrirvarar settir í útboðsgögn en nýjar upplýsingar komu fram 16. desember sl.
Ármann Kr. Ólafsson"
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður hefur frá upphafi ferils málsins lýst fyrirvara sínum vegna þess og þeirrar óvissu sem hefur verið uppi.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Bæjarlögmaður og Guðjón Ármannsson hdl. sátu fundinn undir þessum lið.
Rannveig Ásgeirsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Undirrituð leggur til að bæjarstjóra og formanni bæjarráðs í samvinnu við framkvæmdastjóra Markaðsstofu verði falið að ræða við framkvæmdastjórn RIFF kvikmyndahátíðar og skoða möguleika þess að hýsa hátíðina.
RIFF kvikmyndahátíðin er 10 ára gömul og hefur skapað sér orðspor og byggt upp sterkt vörumerki hérlendis sem erlendis m.a. á grunni þeirra fagmanna sem sitja í stjórn hátíðarinnar: Baltasars Kormáks og Elísabetar Rónaldsdóttur svo einhverjir séu nefndir og að öðrum ólöstuðum. Með hliðsjón af því að Reykjavíkurborg hefur hafnað stuðningi við hátíðina og henni verið úthýst úr fyrrum sýningarrými virðist hún í uppnámi. Það er miður að landkynning sem þessi og hróður hátíðarinnar gufi upp í einu vetfangi. Undirrituð leggur því til að skoðuð verði aðkoma Kópavogsbæjar að hátíðinni og að tillögunni verði vísað til ofangreindra aðila til skoðunar.
Rannveig Ásgeirsdóttir"
Guðríður Arnardóttir lagði til að afgreiðslu tillögunnar yrði frestað til næsta fundar.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Hér er ekki um milljarða útlagðan kostnað að ræða fyrir Kópavogsbæ og því eðlilegt að verða við frestun og fylgja þeirri hefð sem hefur skapast þegar óskað er eftir frestun.
Ómar Stefánsson"
Bæjarráð samþykkir að fresta afgreiðslu tillögunnar.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Lagt fram.