- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
"Undirritaðir ítreka beiðni um að fá launaáætlun ásamt áætlun eignasjóðs.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"
Bæjarráð óskar Útsvarsliði Kópavogs góðs gengis á föstudag og þakkar þeim þá miklu vinnu sem þau hafa lagt í undirbúning.
"Minni á ósvaraðar fyrirspurnir frá þessu og fyrra ári s.s. varðandi héraðsskjalavörð, skrifstofustjóra stjórnsýslusviðs, "peningaskáp" ásamt mörgum öðrum fyrirspurnum.
Gunnar Ingi Birgisson"
"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að veita Kára Steini Karlssyni, maraþonhlaupara úr Breiðabliki, sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í London á næsta ári, einnar m.kr. styrk til undirbúnings og æfinga fyrir leikana.
Það er hefð fyrir því að íþróttafólk í einstaklingsgreinum sem keppa á Ólympíuleikum fyrir hönd íþróttafélaga úr Kópavogi, hafi fengið styrk til undibúnings og æfinga fyrir þátttöku á Ólympíuleikum, þ.e.a.s. Rúnar Alexandersson úr Gerplu og Jón Arnar Magnússon úr Breiðabliki.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"
Tillagan féll á jöfnu en tveir greiddu atkvæði með henni og tveir greiddu atkvæði á móti. Ólafur Þór Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu tillögunnar.
Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Við teljum eðlilegt að íþróttaráð fjalli um styrki til afreksíþróttafólks í Kópavogi og þá á grundvelli fjárheimilda.
Guðríður Arnardóttir, Brynjar Örn Gunnarsson"
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Fulltrúum Sjálfstæðisflokksins þætti eðlilegt að íþróttaráð fengi tillöguna til umfjöllunar og styrkurinn færi inn á fjárhagsáætlun næsta árs og kæmi til útgreiðslu á árinu 2012.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson"
"Hvenær má búast við áliti bæjarlögmanns varðandi framlagningu fundargerða í bæjarráði?
Ómar Stefánsson"
"Hvenær, hver og hversvegna var ákveðið að loka fyrir umsóknir lóða?
Hvenær á að opna fyrir lóðaumsóknir?"
Ómar Stefánsson"
Bæjarstjóri upplýsti að opnað verði fyrir lóðaumsóknir fyrir lok þessarar viku.
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er til mikillar skammar hvernig meirihluti bæjarstjórnar hefur haldið á þessu máli.
Gunnar Ingi Birgisson"
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs til umsagnar.
Ármann Kr. Ólafsson þakkaði svarið og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Af þessu má sjá að "Leikskólabrú" sem er 97 framhaldsskólaeiningar gefur launahækkun upp á 907 kr. sem er of lítill hvati til frekara náms ófaglærðra. Einungis 44 starfsmenn hafa sótt námið undanfarin 5 ár og aðeins 24 þeirra starfa enn hjá Kópavogsbæ.
Ármann Kr. Ólafsson"
Bæjarráð vísar erindinu til leikskólanefndar til umsagnar.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Mér finnst vanta allan rökstuðning fyrir hækkun gjalda.
Ómar Stefánsson"
Ármann Kr. Ólafsson tekur undir bókun Ómars Stefánssonar.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012.
Bæjarráð skipar sviðsstjóra umhverfissviðs í nefndina.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.
Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna um kaup á fasteignunum við Vallargerði 26, Marbakkabraut 14, Hrauntungu 54, Kársnesbraut 110 og Dimmuhvarf 2. Samþykkt með fjórum samhljóða atkvæðum en Ármann Kr. Ólafsson sat hjá.
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Í ljósi þess að minnisblaðið var fyrst lagt fram á fundinum hef ég ekki haft tækifæri til að kynna mér þetta mál nægilega vel en mun gera það áður en málið verður tekið til lokaafgreiðslu í bæjarstjórn.
Ármann Kr. Ólafsson"
Sviðsstjóri umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Hlé var gert á fundi kl. 9:10. Fundi var fram haldið kl. 9:19.
Lögð fram tillaga bæjarstjóra að stofnskrá með samþykktum breytingum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu til að í 7. gr. kæmi: "Forstöðumaður er ráðinn til fimm ára í senn."
Tillagan var felld með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með.
Bæjarráð samþykkir stofnskrá einróma.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.