Bæjarráð

2571. fundur 25. nóvember 2010 kl. 08:15 - 11:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundargerð ritaði: Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1010176 - Kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010

Frá Þjóðskrá Íslands, varðandi leiðréttingu á kjörskrárstofnum vegna kosningar til stjórnlagaþings 27/11 nk. Um er að ræða eftirfarandi aðila: Elmu Rut Jónsdóttur, kt. 220289-2499, Pál Ólafsson, kt. 290180-4819 og Berglindi Ósk Ásbjörnsdóttur, kt. 120883-5429.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

2.1011329 - Skil fjárhagsáætlana sveitarfélaga árið 2011

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 17/11, varðandi skil fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2011.

Lagt fram.

3.706089 - Vegna máls Þreks ehf. vegna leigusamnings við Medic Operating AB

Frá Samkeppniseftirliti, dags. 17/11, varðandi andmælaskjal í skilningi 17. gr. málsmeðferðarreglna Samkeppniseftirlitsins nr. 880/2005 með síðari breytingum.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

4.1011328 - Nefnd um endurskoðun fjöleignarhúsalaga óskar eftir ábendingum og tillögum

Frá félags- og tryggingamálaráðuneyti, dags. 16/11, varðandi endurskoðun laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994. Óskað er ábendinga og tillagna fyrir 10. desember nk.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs til umsagnar.

5.701022 - Vatnsendi. Eignarnám á landi úr jörðinni Vatnsenda

Frá Sigurbirni Þorbergssyni hrl., dags. 16/11, varðandi málefni Vatnsenda.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.

6.1010316 - GKG - Framtíðarstaðsetning félagsheimilis/golfskála

Frá GKG, dags. 16/11, óskað er eftir fundi varðandi uppbyggingu á svæði klúbbsins.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Sveitarfélagið Garðabær hefur ekki lagt fermeter af landi undir golfvöll GKG en Kópavogur hefur hins vegar lagt til land undir 9 holu golfvöll, sem var tekið af byggingarlandi og öðru útivistarsvæði bæjarins. Því telur undirritaður eðlilegt að nýr golfskáli og bílastæði verði í landi Garðabæjar.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Bæjarráð óskar eftir því að sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mæti á næsta fund ráðsins.

7.1011330 - Beiðni um aðstöðu fyrir flugeldaskúr við Dalsmára

Frá HSSK, flugeldanefnd, dags. 19/11, óskað er eftir aðstöðu fyrir flugeldasöluskúr sveitarinnar við Dalsmára.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

8.1011331 - Beiðni um aðstöðu fyrir flugeldasöluskúr við Versali

Frá HSSK, flugeldanefnd, dags. 19/11, óskað er eftir aðstöðu fyrir flugeldasöluskúr sveitarinnar við Versali.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

9.1011332 - Umsókn um leyfi til að reka pylsuvagn

Frá Friðriki Björnssyni, dags. 19/11, sótt um leyfi til að reka pylsuvagn á hjólum í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

10.1011353 - Tillaga að gjaldskrá vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits og hundahalds

Frá heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 4/10, tillaga að gjaldskrá vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits og vegna hundahalds.

Bæjarráð vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar og til afgreiðslu bæjarstjórnar.

11.1011336 - Þrúðsalir 5. Lóðarumsókn.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 22/11, umsögn um umsókn um lóðina Þrúðsali 5.

Bæjarráð samþykkir að úthluta SG Smið ehf., kt. 650507-0880, lóðinni að Þrúðsölum 5.

12.1011308 - Aðgangur að fjármálastjóra

Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram minnisblað vegna óskar Gunnars Inga Birgissonar um aðgang að fjármála- og hagsýslustjóra við gerð fjárhagsáætlunar.

Lagt fram.

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Undirritaður harmar þessa niðurstöðu og það er fáheyrt að bæjarfulltrúa sé meinað að leggja fram eigin fjárhagsáætlun. Þetta er valdníðsla af versta tagi og undrast mjög að bæjarstjóri taki þátt í slíkum vinnubrögðum.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Hlé var gert á fundi kl. 12:00.  Fundi var fram haldið kl. 12:06.

 

Ómar Stefánsson lagði til að minnisblaði bæjarstjóra verði vísað til bæjarstjóra til endurskoðunar.

 

Meirihluti bæjarráðs lagði fram eftirfarandi bókun:

""Meirihluti bæjarráðs harmar að Gunnar Ingi Birgisson skuli ekki ætla að taka þátt í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 með öðrum bæjarfulltrúum og ítrekum að bæjarfulltrúinn hefur sama aðgengi að öllum upplýsingum og gögnum samkvæmt verklagsreglum bæjarstjórnar frá 2006 eins og fram kemur í minnisblaði bæjarstjóra.

Hjálmar Hjálmarsson, Hafsteinn Karlsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Rannveig Ásgeirsdóttir""

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Það er greinilegt að meirihlutinn hefur ekki lesið svar bæjarstjóra við ósk minni þar sem stendur að aðgangi að öllum starfsmönnum bæjarins við gerð fjárhagsáætlunar er hafnað.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Formaður bar undir fundinn tillögu Ómars Stefánssonar og var hún felld með þremur atkvæðum en einn greiddi atkvæði með henni. Einn bæjarráðsfulltrúi sat hjá.  Ármann Kr. Ólafsson óskaði fært til bókar að hann greiddi atkvæði með tillögu Ómars Stefánssonar.

13.1011366 - Fyrirspurn um söguritun

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn til bæjarstjóra:

""Hvenær mun ritun á sögu Kópavogs 1980-2010 ljúka. Skriflegt svar óskast.

Gunnar Ingi Birgisson""

14.1009078 - Smiðjuvegur 14, Goldfinger, beiðni um umsögn.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Fyrir liggur lögfræðiálit hjá bæjarstjóra vegna umsóknar Sportakademíunnar ehf. um opnunartíma að Smiðjuvegi 14. Undirritaður óskar eftir að það verði lagt fram á næsta fundi ráðsins í anda gegnsæis.

Gunnar Ingi Birgisson""

15.1011131 - Hópur fjárfesta óskar eftir viðræðum vegna hugsanlegra kaupa á svæði Glaðheima

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Erindi barst fyrir tveimur vikum frá Frímanni Frímannssyni fyrir hönd fjárfesta, sem höfðu áhuga á að kaupa svonefnt Glaðheimasvæði. Erindinu var vísað til bæjarstjóra, en samkvæmt svörum bæjarstjóra til þessa hefur ekki verið haft samband við bréfritara. Undirritaður óskar eftir skriflegu svari um stöðu málsins á næsta fundi ráðsins.

Gunnar Ingi Birgisson""

16.1011367 - Tillaga um viðtalstíma bæjarfulltrúa

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi tillögu:

""Undirritaður leggur til að viðtalstímar bæjarfulltrúa verði teknir upp að nýju eftir áramót. Aðeins einn bæjarfulltrúi, sem er formaður bæjarráðs, er með auglýsta viðtalstíma hjá bænum. Í anda jafnræðis, lýðræðis og opinnar stjórnsýslu er eðlilegt að aðrir bæjarfulltrúar séu með auglýsta viðtalstíma á bæjarskrifstofum.

Gunnar Ingi Birgisson

Greinargerð:

Í sumar var ákveðið að hætta með viðtalstíma bæjarfulltrúa vegna kostnaðar. Það skýtur skökku við að einn fundur sem fáir bæjarbúar mættu á kostaði yfir 120 þúsund krónur.""

 

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

17.1011368 - Tillaga um samþykkt bæjarstjórnar um lista- og menningarlíf

Ármann Kr. Ólafsson og Ómar Stefánsson lögðu fram eftirfarandi tillögu:

""Undirritaðir leggja til að samþykkt bæjarstjórnar er varðar  lista- og menningarlíf Kópavogsbæjar (og er hlutfall af útsvari)  verði tekin úr gildi í eitt ár.

Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson

Greinargerð:  Í gegnum tíðina hefur verið staðið einstaklega myndarlega að menningarmálum í Kópavogi.  Nú þegar hart er í ár verður að gera meira en gott þykir og því er það lagt til að í stað 0,5% af 6,7% útsvari verði lægri fjárhæð sem ákveðin verður við gerð fjárhagsáætlunar veitt í málaflokkinn á næsta ári.""

 

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

18.1010111 - Fyrirspurn varðandi nýafstaðið útboð Strætó

Frá Strætó bs., dags. 25/10, svar við fyrirspurn varðandi nýafstaðið útboð Strætó, sem frestað var í bæjarráði 18/11.

Lagt fram.

 

Fulltrúar Strætó bs. sátu fundinn undir þessum lið.

19.1011021 - Félagsmálaráð 19/11

1296. fundur

20.1011024 - Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra 22/11

7. fundur

21.1011326 - Óskað eftir heimild til ráðningar v. yfirfærslu málefna fatlaðra

Liður 2 - nefndin samþykkti fyrir sitt leyti ráðningu Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur í fullt starf í þjónustudeild fatlaðra frá 1. janúar 2011.

Bæjarráð samþykkir ráðninguna. Gunnar Ingi Birgisson sat hjá við afgreiðslu málsins.

22.1009090 - Fundargerðir stjórnar Tónlistarhúss 15/11

111. fundur

Hlé var gert á fundi kl. 8:52.  Fundi var fram haldið kl. 9:02.

 

Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu:

""Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks leggja til í ljósi erfiðra aðstæðna í fjármálum bæjarins  að ráðningu í starf Forstöðumanns Salarins verði frestað um eitt ár í sparnaðarskyni.  Tómstunda- og menningarsviði og öðru starfsfólki  Salarins  verði  falið að sjá um reksturinn þar til önnur ákvörðun verður tekin.

Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson, Ómar Stefánsson. 

Greinargerð: 

Nú þegar liggur fyrir dagskrá í Salnum fram á sumar og því skapast möguleiki á að fela starfsfólki á tómstunda- og menningarsviði og öðru starfsfólki  Salarins að sinna verkefnum forstöðumanns Salarins að stærstum hluta. Tilfallandi verkefni verður hægt að  annast með aðkeyptri vinnu.""

 

Hlé var gert á fundi kl. 9:03.  Fundi var fram haldið kl. 9:04.

 

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar.

23.1002171 - Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 10/11

781. fundur

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Í ljósi þess að samkvæmt fundargerðinni kemur fram að stjórn Sambandsins telji ekki tímabært að heimila formanni og framkvæmdastjóra að undirrita samning við ríkisvaldið fyrr en niðurstaða í málinu liggi fyrir óskar undirritaður eftir því að fá upplýsingar um það hvenær stjórn Sambandsins veitti heimild til undirritunar.

Ármann Kr. Ólafsson""

24.1001157 - Stjórn Strætó bs. 19/11

150. fundur

Fulltrúar Strætó bs. gerðu grein fyrir tillögum til hagræðingar í rekstri fyrirtækisins.

25.1010107 - Fyrirspurn varðandi verðmun á akstri einkaaðila og eigin akstri Strætó

Frá Strætó bs., dags. 25/10, svar við fyrirspurn varðandi verðmun á akstri einkaaðila og eigin akstri Strætó, sem frestað var á fundi bæjarráðs 18/11.

Lagt fram.

 

Fulltrúar Strætó bs. sátu fundinn undir þessum lið.

 

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Samkvæmt þessu svari þá liggur ekki fyrir samanburður á verðmismun á eigin akstri Strætó og verktaka. Óskað er eftir því að stjórn Strætó fái niðurstöðu í það hver þessi verðmunur sé eftir síðasta útboð fyrirtækisins.

Ármann Kr. Ólafsson""

26.1010109 - Fyrirspurn varðandi notkun lítilla vagna inn í hverfum Kópavogs

Frá Strætó bs., dags. 25/10, svar við fyrirspurn varðandi notkun lítilla vagna inn í hverfum Kópavogs, sem frestað var á fundi bæjarráðs 18/11.

Lagt fram.

 

Fulltrúar Strætó bs. sátu fundinn undir þessum lið.

27.1011020 - Atvinnu- og upplýsinganefnd 18/11

329. fundur

28.1010124 - Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari gagna vegna kaupa á nýjum vögnum

Frá Strætó bs., dags. 25/10, svar við fyrirspurn varðandi kaup á nýjum vögnum, sem frestað var í bæjarráði 18/11.

Lagt fram.

 

Fulltrúar Strætó bs. sátu fundinn undir þessum lið.

29.1010125 - Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna kostnað við aksturstengingar við Mjódd úr Vatnsendahverfinu

Frá Strætó bs., dags. 25/10, svar við fyrirspurn um kostnað við aksturstengingar við Mjódd úr Vatnsendahverfinu, sem frestað var í bæjarráði 18/11.

Lagt fram.

 

Fulltrúar Strætó bs. sátu fundinn undir þessum lið.

30.1011356 - Útsvar fyrir 2011

Frá bæjarstjóra, tillaga um að útsvar verði óbreytt, þ.e. 13,28%, en með fyrirvara um mögulega breytingu eftir tilfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

31.1011343 - Sparnaðartillaga

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, tillaga vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

32.1003012 - Mánaðarskýrslur 2010

Frá bæjarritara, mánaðarskýrsla Kópavogsbæjar nóvember 2010, yfirlit yfir starfsemi bæjarins í október 2010.

Lagt fram.

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarndi bókun:

""Undirritaður telur að ósamræmi sé í mánaðarskýrslu og aðalbók bæjarins.

Gunnar Ingi Birgisson""

33.912645 - Fjárhagsáætlun 2010

Frá fjármála- og hagsýslustjóra, svör við fyrirspurnum Gunnars Inga Birgissonar frá síðasta fundi bæjarráðs.

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Undirritaður þakkar greinargóð svör.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Lagt fram.

34.1010383 - Ráðning sérfræðings vegna yfirfærslu málefna fatlaðra. Beiðni til bæjarráðs

Frá yfirmanni þjónustudeildar fatlaðra, óskað er eftir leyfi bæjarráðs til að ráða Ástríði Helgu Erlendsdóttur í 1,0 frá og með 1. janúar nk. vegna yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir tillögu um ráðningu.

Fundi slitið - kl. 11:15.