Bæjarráð

2575. fundur 23. desember 2010 kl. 08:15 - 10:15 í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Fundargerð ritaði: Þórður Clausen Þórðarson, bæjarlögmaður og Páll Magnússon bæjarritari
Dagskrá

1.1009017 - Ósk um upplýsingar um bifreiðakost Kópavogsbæjar

Minnisblað, dags. 15/9, um breytingar á bensínbílum, til nánari upplýsinga fyrir næsta mál hér fyrir framan, 1012099.

Lagt fram.

2.1012295 - Fundargerðir nefnda

Ómar Stefánsson minnti á samþykkt bæjarráðs um að fundarritarar sendi bæjarfulltrúum fundargerðir um leið og þær hafa verið ritaðar.

3.1012293 - Tillaga um gjaldfrjálst aðgengi 67 ára og eldri að sundlaugum

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi tillögu:

""Þar sem ég gat ekki flutt tillögu á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag um gjaldskrá sundlauga legg ég til að 67 ára og eldri fái gjaldfrjálsan aðgang að sundlaugum Kópavogs.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Óskaði Gunnar eftir því að tillögunni yrði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar og var það samþykkt.

4.1010302 - Fjárhagsáætlun 2011

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Nýsamþykkt fjárhagsáætlun 10 bæjarfulltrúa meirihlutans hefur í för með sér mestu skatta- og þjónustugjaldahækkanir á íbúa Kópavogsbæjar í yfir tuttugu ár. Þessir 10 bæjarfulltrúar gátu greinilega ekki verið sammála um hver ætti að draga saman í rekstri en öll voru þau einhuga um að hækka álögur á íbúana. Það er með ólíkindum að 3 bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins standa að slíkum tillögum.

Þessi fjárhagsáætlun er aðför að ungum barnafjölskyldum og að íþróttastarfi í Kópavogi. Grunnur fjárhagsáætlunarinnar er óljós, ekki liggur fyrir hver raunveruleg skuldastaða bæjarsjóðs er, en líklegt er að vaxtaberandi skuldir 31/12 2010 séu nálægt 40 milljarðar. Að venju þegar þegar þetta fólk gerir fjárhagsáætlun saman, þá eru inni í áætluninni 140 milljónir óskilgreind hagræðingarkrafa, en í fjárhagsáætlun 2010 sem gerð var mestmegnis af sama fólki var 140 milljónir króna hagræðingarkrafa, en einungis náðust 7,5 milljónir króna í þá hagræðingu.

Engin framtíðarsýn fyrir Kópavog er í þessari fjárhagsáætlun 10-menningana og er einnig hugmyndasnauð og boðar slæma tíma fyrir Kópavogsbúa.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Hlé var gert á fundi kl. 10:55.  Fundi var framhaldið kl. 11:01.

 

Bæjarfulltrúar meirihluta bæjarráðs lögðu fram eftirfarandi bókun:

""Gunnar Birgisson og lýðræði hafa aldrei átt sérstaka samleið.  Sem fyrr sýnir Gunnar fádæma hroka með yfirlýsingum sínum og hagræðir sannleikanum að vild bæði á fundum og í fjölmiðlum.

Sérkennilegt að bæjarfulltrúi með 20 ára reynslu seti fram fjárhagsáætlun með sparnaðartillögum sem hann ætti að vita að eru ekki framkvæmanlegar.

Við vísum allri gagnrýni Gunnars til föðurhúsanna og bendum á að 10 af 11 fulltrúum ásamt nefndarfólki, starfsmönnum og sérfræðingum bæjarins hafa unnið vandaða og raunhæfa áætlun ársins 2011.  Fyrir þá vinnu og góða samstarf þökkum við.

Guðríður Arnardóttir, Guðný Dóra Gestsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Rannveig Ásgeirsdóttir""

 

Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Fjárhagsáætlanir undanfarin tvö ár hafa verið unnar í sameiningu allra flokka. Það vinnulag hófst undir forystu Gunnars I. Birgissonar sem þá var bæjarstjóri. Núverandi meirihluti bauð upp á sama fyrirkomulag við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011. Óskað var eftir því að Gunnar I. Birgisson tæki þátt í gerð fjárhagsáætlunarinnar þar sem hann býr yfir mikilli reynslu sem bæjarfulltrúi til 20 ára. Undirritaður setti það sem skilyrði að allir bæjarfulltrúar kæmu að allri undirbúningsvinnu áætlunarinnar en ekki aðeins oddvitar flokkanna eins og hugmyndir voru um. Það var gert svo að ljóst væri að hægt væri að njóta krafta Gunnars. Hann kaus að láta ekki á það reyna hvort hann gæti átt samleið með öðrum bæjarfulltrúum þ.m.t. fulltrúum hans eigin flokks.

Ármann Kr. Ólafsson""

 

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Miðað við að Gunnar hafi ekki þurft að taka tillit til neins flokks eða annarra einstaklinga aðeins byggt á eigin áliti vekur athygli að ekki skuli vera neinar sparnaðartillögur sem eru með þeim hætti að hægt sé að samþykkja þær.  Allt tal um árásir á barnafjölskyldur og íþróttafélögin er mjög fært í stílinn og eiga allir að geta unað við samþykkta fjárhagsáætlun 2011.

Ómar Stefánsson""

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Ekki var mikill áhugi meirihlutans á aðkomu minni að gerð fjárhagsáætlunar 2011 þar til ég ákvað að leggja fram mína eigin.

Bókun vinstri fjórflokksins er lík lífssýn þessa fólks, þar sem sannleikanum er venjulega snúið á hvolf. Yfirlýsing Guðríðar Arnardóttur í fjölmiðlum að búið sé að skera alla fitu úr rekstri Kópavogsbæjar sýnir annaðhvort vankunnáttu eða hroka nema að hvort tveggja sé. En vinstri meirihlutinn sem er ekki tilbúinn að hagræða í rekstri heldur sendir Kópavogsbúum reikninginn með hækkun á sköttum og þjónusutugjöldum.

Gunnar Ingi Birgisson""

""Fulltrúar meirihluta bæjarráðs óska Gunnar Birgissyni gleðilegra jóla.

Guðríður Arnardóttir, Guðný Dóra Gestsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Rannveig Ásgeirsdóttir""

5.1012240 - Skólaskýrsla 2010

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, skólaskýrsla 2010, tölulegar upplýsingar um skólamál.

Lagt fram.

6.1012230 - Stjórn UMSK lýsir yfir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði á fjárstuðningi frá sveitarfélögum

Frá UMSK, dags. 17/12, varðandi niðurskurð á fjárstuðningi til íþróttafélaga.

Lagt fram.

7.1012234 - Styrkumsókn

Frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, dags. 15/12, sótt um framlag að upphæð kr. 400.000 til starfseminnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.

8.1011332 - Umsókn um leyfi til að reka pylsuvagn í Kópavogi

Frá Friðriki Björnssyni, dags. 16/12, umsókn um leyfi til rekstrar pylsuvagns, sem væntanlega yrði staðsettur á Smáratorgi og/eða við Vínbúðina á Dalvegi.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

9.1011180 - Leiðakerfi Strætó bs.

Frá Strætó bs., dags. 21/12, vegna fyrirhugaðra breytinga á leiðum 28 og 36. Í ljósi þess að Reykjavíkurborg hafnar þátttöku er afstöðu Kópavogs óskað að nýju. Meðfylgjandi er svar borgarinnar ásamt ályktun umhverfis- og samgönguráðs.

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, lagði til eftirfarandi afgreiðslu:

""Bæjarráð vísar málinu til framkvæmdaráðs og að ráðið kanni möguleika þess að bjóða út aksturtengingu við Mjódd.""

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði til að bæjarráð hefði málið til úrvinnslu. Var tillaga hans felld með þremur atkvæðum en einn greiddi atkvæði með henni.

 

Tillaga Guðríðar Arnardóttur var samþykkt samhljóða.

 

Ármann Kr. Ólafsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

10.1012239 - Verkfallslistar 2011

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 20/12, verkfallslistar 2011.

Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra til úrvinnslu.

11.1009020 - Niðurstaða ársreiknings Kópavogsbæjar

Frá EFS, Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dags. 17/12, niðurstaða ársreiknings fyrir árið 2009.

Lagt fram.

12.1012058 - Kæra til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna afgreiðslu á beiðni um niðurstöður jarðfræðirannsók

Frá Sigurbirni Þorbergssyni, hrl., dags. 20/12, varðandi afhendingu gagna.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

13.1002199 - Ósk um álit ráðuneytis á hæfi skoðunarmanns reikninga Kópavogsbæjar

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 17/12, álit ráðuneytisins í stjórnsýslumáli nr. 20/2010, varðandi hæfi skoðunarmanns ársreikninga Kópavogsbæjar.

Lagt fram.

14.1012189 - Úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2011

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 10/12, varðandi úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu á fjárhagsárinu 2011.

Lagt fram.

15.1011137 - Beiðni um endurskoðun reglna um fjölda tölva í grunnskólum Kópavogs

Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 21/12, svar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, varðandi beiðni um endurskoðun reglna um fjölda tölva í grunnskólum Kópavogs.

Lagt fram.

 

""Þakka langt svar sem því miður skautar framhjá spurningunni. Ekki verður séð að núverandi tölvukostur hamli framgangi þeirra atriða sem upp eru talin í svarinu. Þá vil ég benda á að tölvur eru nánast inni á hverju heimili og eru þær því hluti af daglegu lífi nemenda.

Ármann Kr. Ólafsson""

16.801276 - Kæra vegna úthlutunar lóða á Kópavogstúni árið 2005.

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 21/12, lagður fram dómsúrskurður vegna úthlutunar lóða á Kópavogstúni árið 2005.

Lagt fram.

17.1012013 - Félagsmálaráð 21/12

1298. fundur

18.1012099 - Fyrirspurn um kostnað við metanbíla

Frá sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 21/12, svar við fyrirspurn Gunnars Inga Birgissonar, um kostnað við metanbíla. Einnig er vísað til minnisblaðs, málsnúmers 1009017, sjá næsta mál hér á eftir.

Lagt fram.

19.1011015 - Vatnsendablettur 102 (nú Ennishvarf 13), eignarnámsferli. Beiðni um rökstuðning

Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 21/12, óskað samþykkis bæjarráðs fyrir rökstuðningi fyrir málsmeðferð matsnefndar eignarnámsbóta.

Bæjarráð samþykkir tillögu að rökstuðningi.

 

Gunnar Ingi Birgisson tók ekki þátt í afgreiðslu málsins.

 

Guðríður Arnardóttir vék af fundi undir þessum lið.

20.1012170 - Fyrirspurn um tekjur af samningum við Nautulus

Svar deildarstjóra ÍTK við fyrirspurn frá síðasta fundi.

Lagt fram.

21.706089 - Vegna máls Þreks ehf. vegna leigusamnings við Medic Operating AB

Í skjali, sem fylgir þessu máli (málsnúmeri) eru viðbótarupplýsingar við mál hér næst á undan (0702029).

Lagt fram.

22.702029 - Varðar kvörtun Þreks vegna útleigu Kópavogsbæjar á húsnæði og aðstöðu fyrir líkamsræktarstöð í Versö

Frá deildarstjóra íþrótta- og tómstundamála og bæjarlögmanni, dags. 16/12, afrit af bréfi til Samkeppniseftirlits, athugasemdir Kópavogsbæjar vegna erindis Samkeppniseftirlitsins frá 28/10 sl. varðandi samninga bæjarins við Medic.

Lagt fram.

23.1012169 - Hæfi bæjarfulltrúa

Frá bæjarritara, umsögn dags. 18/12, um hæfi bæjarfulltrúa, sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins, til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Lagt fram.

 

Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Í ljósi sveitarstjórnarlaga á ekki að koma neinum á óvart sem starfað hefur að sveitarstjórnarmálum að það er skýrt að starfsmenn sveitarfélaga eru hæfir til þess að taka þátt í afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Ómar Stefánsson""

24.1011234 - Gullsmári 11

Sbr. lið 8 í fundargerð bæjarráðs 9/12, sem frestað var, varðandi tillögur um breytingar á húsnæði í Gullsmára 11, en bæjarráð óskaði eftir kostnaðarútreikningi og nánari útfærslu tillögunnar.

Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að hefja undirbúning framkvæmda.

25.1005149 - Fundargerðir stjórnar Héraðsskjalasafns 2010

Sbr. lið 40 í fundargerð bæjarráðs 16/12, sem frestað var, varðandi tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar frá fundi bæjarráðs 2/12.

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, leggur til breytingu og tillagan verði afgreidd svo hljóðandi:

""Bæjarráð felur stjórn Héraðsskjalasafns að segja upp leigusamningi í núverandi húsnæði samhliða því að endurskoða alla kostnaðarliði og ræða meðal annars við leigusala um hagkvæmari  leigusamning.

Guðríður Arnardóttir""

 

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, lagði fram eftirfarandi bókun:

""Undirrituð vekur athygli á vanhæfi Gunnars I Birgissonar bæjarfulltrúa við afgreiðslu málsins.  Formaður óskaði eftir því að hann viki af fundi sökum þess en hann varð ekki við því.

Guðríður Arnardóttir""

 

Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:

""Undirritaður tekur ekki þátt í afgreiðslu málsins en tel mig geta tjáð mig um málið.

Gunnar Ingi Birgisson""

 

Bæjarráð óskar eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort bæjarfulltrúi sem lýsir sig vanhæfan í máli og tekur ekki þátt í afgreiðslu þess geti tekið þátt í umræðu um málið.

 

Ómar Stefánsson vék af fundi undir þessum lið.

26.1001157 - Stjórn Strætó bs. 10/12

Fundargerð 151. fundur stjórnar Strætó bs., sem frestað var á fundi bæjarráðs 16/12 sbr. lið 12 í fundargerð.

Bæjarráð lýsir áhyggjum sínum yfir litlu vægi stjórnar Strætó við stefnumótun samlagsins sem lýsir sér best þegar ákvörðunum stjórnar er iðulega snúið með ákvörðun  Reykjavíkurborgar.  Bæjarráð felur framkvæmdaráði að vinna kostnaðargreiningu á sjálfstæðum rekstri strætisvagna Kópavogs.

Hugmyndafræðin bak við sameiginlegan rekstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu grundvallast á því að höfuðborgarsvæðið er landfræðileg samfella og eitt atvinnusvæði og  mikilvægt að tekið sé tillit til sjónarmiða  allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu  sem að samlaginu standa.

27.1003055 - Málskostnaður í dómsmáli (Frjáls miðlun) . Lagaleg staða sveitarfélaga gagnvart kostnaði sem fellur

Frá bæjarritara, dags. 22/12, tillaga um greiðslu málskostnaðar.

Lögð fram eftirfarandi tillaga bæjarritara: 

""Í ljósi dómsniðurstöðu héraðsdóms Reykjaness í máli Frjálsrar miðlunar ehf. gegn bæjarfulltrúunum Guðríði Arnardóttur, Hafsteini Karlssyni og Ólafi Þór Gunnarssyni samþykkir bæjarráð að Kópavogsbær greiði málskostnað bæjarfulltrúanna enda sé sá kostnaður sannanlega umfram dæmdan málskostnað. Þá felur bæjarráð bæjarlögmanni að leita eftir tilboðum í tryggingar sem tækju á samskonar málum í framtíðinni.""

 

Gunnar Ingi Birgisson óskar bókað:

""Í fyrsta lagi liggur fyrir að dómari hefur dæmt þremenningunum hæfilegar málsvarnarbætur.  Í öðru lagi  liggja fyrir eftirfarandi álit vegna þessa máls:  Í fyrsta lagi frá Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum, í öðru lagi frá Lagastofnun Háskóla Íslands, í þriðja lagi  álit sviðsstjóra lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga.  Í áliti frá Lagastofnun Háskóla segir m.a. Þótt ýmislegt sé óljóst um heimildir sveitarfélaga til að greiða slíkan kostnað umfram skyldu má ætla að dómstólar myndu játa þeim slíka heimild ef á reyndi.  Beiting slíkrar heimildar skapar hins vegar örðug álitamál í ljósi jafnræðisreglna og skapar fordæmi sem leitt gætu til þess að játa yrði öðrum en kjörnum fulltrúum sambærilega aðstoð.  Í fjórða lagi:  Undirritaður telur eðlilegt að bæjarráð fái að sjá lögfræðikostnað þremenninganna áður en bæjarráð tekur ákvörðun um greiðslu.  Ef bæjarráð myndi samþykkja þessa tillögu er bæjarráð að samþykkja óútfylltan tékka  á hendur bæjarsjóði. Í fimmta lagi:  Undirritaður óskar eftir áliti Gests Jónssonar hrl. í þessu máli.  Í sjötta lagi:.  Ég óska eftir því að málið verði ekki afgreitt fyrr en álit Gests Jónssonar liggur fyrir og upphæð kostnaðar.  Í sjöunda lagi:  Enn liggur ekki fyrir hvort málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar.  Hvað ef Hæstiréttur snýr við niðurstöðu í málinu?""

Meirihlutinn óskar bókað að það álit sem liggur fyrir til grundvallar tillögunni er fullnægjandi forsenda til ákvörðunartöku í málinu og lögfræðileg álitamál teljast að fullu upplýst.   

Kl. 09:04 var gert fundarhlé.  Fundi var framhaldið kl. 09:08. 

 

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

28.1009090 - Stjórn Tónlistarhúss 16/12

114. fundur

Ármann Kr. Ólafsson óskar bókað:    

""Á fundi bæjarráðs 25.nóvember s.l. var lögð fram tillaga um að fresta ráðningu í stöðu forstöðumanns Salarins.  Meirhlutinn treysti sér ekki til að afgreiða hana og frestaði henni.  Þar með taldi ég að ráðningarferlinu væri jafnframt frestað þar til að afgreiðsla hennar lægi fyrir.  Ég mótmæli þessum vinnubrögðum og sýna þau fullkomna vanvirðingu í garð bæjarráðs. 

Fundarhlé var gert kl. 8:30.  Fundi var framhaldið kl. 8:34.

Meirihluti óskar bókað:  ""Meirihlutinn telur mikilvægt að ganga frá ráðningu forstöðumanns Salarins, enda er Salurinn helsta menningarstofnun bæjarins og mikilvægt að þar haldi áfram öflug starfsemi."" 

Ómar Stefánsson óskar bókað að vinna við ráðningarferlið er bókað sem stjórnarfundir en fjölmörg dæmi eru um að sambærileg vinna hafi verið unnin í sjálfboðavinnu utan funda hjá öðrum nefndum.

29.1009090 - Stjórn Tónlistarhúss 14/12

113. fundur

30.1009090 - Stjórn Tónlistarhúss 13/12

112. fundur

31.1001156 - Stjórn Sorpu bs. 13/12

281. fundur

32.1012009 - Leikskólanefnd 16/12

14. fundur

Varðandi lið 2  óskar Gunnar Birgisson bókað:

""Við gerð fjárhagsáætlunar var mér tjáð að fagnefndir bæjarins ættu að koma með tillögur að fjárhagsáætlun viðkomandi deilda eða sviða.  Það er greinilegt að meirihluti 10 bæjarfulltrúa hefur gefið lítið fyrir tillögur leikskólanefndar.

 

Fulltrúar meirihluta bæjarráðs óska bókað:

""Tekið var tillit til fagnefnda en hins vegar var ekki hægt að verða við óskum allra nefnda."" 

Gunnar Birgisson óskar bókað:

""Það er greinilegt að það var lítið tillit tekið til óska fagnefnda."" 

Meirihluti bókar:  ""Vísað til fyrri bókunar og ítrekað að tillit hafi verið tekið til nefnda.

Hjálmar Hjálmarsson, Guðný Dóra Gestsdóttir, Pétur Ólafsson, Rannveig Ásgeirsdóttir""

Formaður bæjarráðs færði ráðsmönnum þakkir fyrir samstarfið á árinu og óskaði þeim gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Fundi slitið - kl. 10:15.