- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Þökkum svarið. Það er greinilegt að það er að ganga eftir sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa haldið fram að lóðir í Kópavogi mundu fyrst ganga út á höfuðborgarsvæðinu þegar farið yrði að byggja á ný. Þá er nauðsynlegt að standa við þau fyrirheit að tekjur af lóðasölu fari í niðurgreiðslu skulda.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""
Bæjarráð samþykkir tillögu um að nýta forkaupsrétt.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar eru innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagins segja til um.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar eru innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagins segja til um.
Lagt fram. Umræðu frestað.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs að umsögn.
Lagt fram.
Gunnar Ingi Birgisson óskaði fært til bókar að hann þakkar fyrir framlagt svar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Meirihlutinn hefur margsinnis farið á skjön við fárhagsáætlun og ekki hikað við að eyða umfram hana, m.a. tugmilljónum til fjárfestinga og rekstrar, þrátt fyrir mótmæli Sjálfstæðisflokksins. Af þeim sökum hefur meirihlutinn sagt upp samstöðu um fjárhagsáætlunina. Við greiðum því atkvæði gegn þessari lækkun. Fyrst meirihlutinn telur sig sífellt geta eytt umfram fjárhagsáætlun þá væri réttara að verja þeim fjármunum í barna- og unglingastarf innan bæjarins.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""
Ómar Stefánsson tók undir bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks.
Tillagan samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokks.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með einu greiddu atkvæði. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Meirihlutinn er nú þegar búinn að missa skólana fram úr fjárhagsáætlun þrátt fyrir sáralítinn niðurskurð á milli ára. það verður vandséð hvar taka á fjármagn í þessa aukningu. Hvar á að fá þessa peninga?
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""
Hafsteinn Karlsson og Hjálmar Hjálmarsson viku af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og starfsmannastjóra til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umsagnar.
Ómar Stefánsson óskaði fært til bókar að hann þakkar góð svör, en bendir á að það þyrfti að fylgja öllum liðum hvernig samþykktir áttu sér stað í bæjarráði.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissvið til umsagnar.
""Þetta bréf er áfellsdómur fyrir stjórnsýslu bæjarins en í því kemur fram að viðkomandi hafi ekki fengið svör, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir um málið.
Gunnar Ingi Birgisson""
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til skrifstofustjóra umhverfissviðs til umsagnar.
Sviðsstjóri umhverfissviðs hefur svarað erindinu með bréfi dags. 19/8 sl.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til jafnréttis- og mannréttindaráðs til úrvinnslu.
Lagt fram.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar og skipulagnefndar umhverfissviðs til umsagnar.
Lagt fram.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Formaður bæjarráðs hefur bakkað inn í fortíðina og bannað skipulagsstjóra að vera með kynningu á erindum skipulagsnefndar. Það er til skammar að fá ekki fullnægjandi kynningu á því sem taka á afstöðu til.
Ómar Stefánsson""
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Allir fundarmenn eru með gögn aðgengileg í fundarmannagátt.
Guðríður Arnardóttir""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Ég mótmæli því að ekki sé hægt að kasta upp á vegg myndum af teikningum.
Gunnar Ingi Birgisson""
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram.
Lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir ítarlegri kostnaðargreiningu og að deildarstjóri þjónustudeildar fyrir fatlað fólk mæti á næsta fund ráðsins vegna málsins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að ganga til viðræðna við Hafnarfjarðarbæ um samstarf í málaflokknum.
Bæjarráð óskar eftir að fá kostnaðaráætlun og dagskrá vegna Hamraborgarhátíðar.
Bæjarráð samþykkir framkomna útfærslu Hestamannafélagsins Gusts að reiðskemmu á Kjóavöllum.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar og óskar eftir að deildarstjóri framkvæmdadeildar mæti til næsta fundar. Þá verði jafnframt gerð grein fyrir því hvaða sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu ætla að taka þátt í sameiginlegu útboði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Í samstarfsyfirlýsingu fjórflokkameirihlutans segir: ""Kópavogur verði fyrsta stóra sveitarfélagið til að taka upp flokkun sorps"". Meirihlutinn fékk þó í forgjöf niðurstöður tilraunaverkefnis um flokkun sorps sem fyrrverandi meirihluti stóð fyrir. Akureyri er nú þegar búið að þessu fyrir nokkrum mánuðum. Þar láta menn verkin tala en segja minna.
Bæjarráð samþykkir tillögu Vegagerðarinnar.
Bæjarráð felur jafnréttis- og mannréttindanefnd að vinna að gerð aðgerðaráætlunar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gagnvart börnum.
Sviðsstjóri menntasviðs og deildarstjóri íþróttadeildar sátu fundinn undir þessum lið.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
""Legg til að fyrri samþykkt bæjarráðs standi varðandi tímatöflu í knatthúsunum og að gerð verði sambærileg úttekt á nýtingu íþróttahúsanna og sömu reglur verði þá látnar gilda í öllum íþróttagreinum.
Ómar Stefánsson""
Hlé var gert á fundi kl. 9.44. Fundi var fram haldið kl. 9.53.
Tillaga Ómars Stefánssonar var felld með þremur atkvæðum en einn greiddi atkvæði með henni.
Gunnar Ingi Birgisson óskaði eftir því að liður (a) yrði borinn upp til staðfestingar í bæjarráði og var það samþykkt.
Tveir fulltrúar greiddu atkvæði með tillögu íþróttaráðs undir lið 1a í fundargerðinni en tveir greiddu atkvæði á móti. Einn bæjarfulltrúi sat hjá. Afgreiðsla íþróttaráðs á lið 1a telst því ekki staðfest. Þar sem bæjarráð hafði áður staðfest ákvörðun íþróttaráðs frá 29. júní sl. um tímatöflur gildir sú ákvörðun.
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Undirrituð var ekki á fundi bæjarráðs fyrr í sumar þegar tímatöflur voru teknar til afgreiðslu og situr því hjá.
Guðríður Arnardóttir""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Það er mjög merkilegt að formaður bæjarráðs skuli ekki hafa pólitískan kjark til að taka afstöðu í þessu máli.
Gunnar Ingi Birgisson""
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Undirrituð styður bæði sjónarmið.
Guðríður Arnardóttir""
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Undirritaður leggur til vegna liðar 1e að sviðsstjóra menntasviðs verði falið að ræða við forsvarsmenn dægradvala, skólastjóra og íþrótta- og tómstundafélaga.
Ólafur Þór Gunnarsson""
Rannveig Ásgeirsdóttir tók undir bókun Ólafs.
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Fyrr í sumar ákvað bæjarstjórn tímaskiptingu og því gengur ekki að breyta henni þegar vetrarstarfið er að hefjast. Undirritaður styður ákvörðun íþróttaráðs um að talning í mannvirkjunum verði aukin þannig að hægt verði að byggja á nýtingartölum við útdeilingu tíma í mannvirkjunum. Ármann Kr. Ólafsson""
Bæjarráð staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Til þess að minnast fyrri gangrýni Samfylkingar og VG óska ég bókað:
1. Bútasaumur (ekki er verið að skipuleggja heildarsvæðið)
2. Auglýst á há sumarleyfistíma
3. Samráð við íbúa og næsta nágrenni (mikil mótmæli)
4. Hæð nálægra húsa
5. Gönguleið umhverfis hafnarsvæði
6. Áætlun um aukið samráð við íbúa (málefnasamningur)
Jafnframt tel ég að húsinu hefði betur verið fyrir komið vestan við Vesturvör 36
Ómar Stefánsson""
Bæjarráð samþykkir erindið.
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með þremur atkvæðum gegn einu og hafnar erindinu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá.
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Það er ástæða til að fagna sérstaklega breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Kópavogsbraut 1d.
Ólafur Þór Gunnarsson""
Guðríður Arnardóttir tók undir bókun Ólafs.
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Skipulagsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Guðríður Arnardóttir tekur undir eftirfarandi bókun meirihluta skipulagsnefndar:
""Tillagan er lögð fram til að efna ""eignarnámssátt"" sem fyrri meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerði við landeiganda á Vatnsenda og var unnin án nokkurs samráðs við skipulagsnefnd Kópavogsbæjar þrátt fyrir að hún fari með skipulagsmál samkvæmt lögum.
Tillagan er í mikilli andstöðu við stefnu núverandi meirihluta, sem vill standa vörð um lífríki Elliðavatns og tryggja aðgengi íbúa bæjarins að bakka vatnsins. Vegna eignarnámssáttarinnar frá 30. janúar 2007 sjáum við okkur knúin til að samþykkja að tillagan verði auglýst og til að standa vörð um fjárhagslega hagsmuni Kópavogsbæjar. Þá er rétt að árétta að fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna lögðust gegn þeim samningi og bentu meðal annars á þær skipulagslegu forsendur sem bundnar voru í samninginn sem sviptu bæjarbúa þeim lýðræðislega rétti sínum að hafa áhrif á umhverfi sitt og skipulag. Með óbragð í munni vísum við allri ábyrgð þessa gjörnings á fyrri meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Undirrituð leggja áherslu á að tryggt verði aðgengi að opnu svæði fyrir almenning eins og getið er um í núverandi aðalskipulagi.""
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Í eignarnámssáttinni er tekið skýrt fram að ekki er um neinn byggingarrétt að ræða á þessum fjórum landspildum. Núverandi meirihluti hefur ekki gert neinar tilraunir til þess að leita sátta um þessi lönd eða Vatnsendablett 241a og er enn eitt skýra dæmið um algert aðgerðarleysi. Því dæmir bókun Selskapsins í skipulagsnefnd sig sjálf.
Ómar Stefánsson""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Ég fagna því að Kópavogsbær skuli ætla að standa við öll ákvæði í eignarnámssátt Kópavogs við Vatnsendabónda. Árið 2009 ákvað meirihluti bæjarstjórnar að standa ekki við ákveðna hluti eignarnámssáttarinnar. Að þeirri samþykkt stóðu Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, Guðríður Arnardóttir, Hafsteinn Karlsson, Jón Júlíusson, Flosi Eiríksson og Ólafur Þór Gunnarsson. Það liggur fyrir að ef Kópavogsbær stendur ekki við eignarnámssátt bakar það Kópavogsbæ möguleika á verulegum skaðabótum frá landeiganda.
Gunnar Ingi Birgisson""
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Ég vil leiðrétta orð Gunnars Inga Birgissonar en tillaga að skiptingu lóðar að Vatnsendabletti 134 er búin að vera í fresti í bæjarráði frá árinu 2009.
Guðríður Arnardóttir""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Fyrir lá andstaða ofangreindra aðila við ákvæði eingarnámssáttar varðandi Vatnsendablett 134.
Gunnar Ingi Birgisson""
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Gunnar er nú að skjóta sér undan ábyrgð sem þáverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins því þessi tillaga kom frá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins inn í skipulagsnefnd og samþykkt af öllum þar. Ekki lá fyrir álit einstakra bæjarfulltrúa þegar bæjarráð frestaði Vatnsendabletti 134 á fundi 2009.
Ómar Stefánsson""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Í júní 2009 lá fyrir afstaða sjö framangreindra bæjarfulltrúa varðandi nýtingu á landinu milli vatns og vegar og voru á móti þeim atriðum sem stóðu í sáttinni um þetta svæði.
Gunnar Ingi Birgisson""
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Það er ekki rétt með farið hjá Gunnari í þessari bókun varðandi mína afstöðu.
Ómar Stefánsson""
Bæjarráð frestar afgreiðslu skipulagsnefndar með þremur samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar sátu hjá.
Skipulagsstjóri og bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Við gerð fjárhagsáætlunar var ákveðið að leita nýrra leiða vegna skólamáltíða í grunnskólum Kópavogs eins og fram kemur í greinargerð. Staðreyndin er sú að ekkert var gert í þeim efnum heldur allt gert með hefðbundnu sniði. Það er meirihlutans að fylgja eftir ákvörðunum fjárhagsáætlunar. Hann réð ekki við verkefnið og er þessi hækkun því alfarið á hans ábyrgð.
Ármann Kr. Ólafsson""
Guðríður Arnardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Þetta er rangt hjá Ármanni. Nú hafa tveir grunnskólar til viðbótar farið að elda sjálfir og enn er unnið að frekari sparnaði í rekstri mötuneytanna, og samkomulag náðist ekki um lækkun á innkaupsverði á skólamat.
Guðríður Arnardóttir""
Rannveig Ásgeirsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
""Í kjölfar fjárhagsáætlunar 2011 var starfsmönnum menntasviðs falið að ræða við þá sem þjónustuðu skóla bæjarins með hádegisverð um aðra samsetningu á matarkosti þeirra og hugsanlega lækka þannig matarkostnað. Farið var í þá vinnu en í samtölum við þáverandi þjónustuaðila var fyrirséð að kostnaður myndi hugsanlega aukast vegna umtalsverðra breytinga í starfsemi þeirra, matarverð yrði ekki lægra og kröfum um manneldismarkmið yrði hugsanlega hnikað. Farið var í nýtt útboð. Út úr því fékkst ekki sú hagræðing sem væntingar stóðu til. Samhliða þessu hófu starfsmenn menntasviðs vinnu við að reikna ítarlega hugsanlega hagkvæmni þess að elda heima og niðurstaða var sú að tveir skólar elda heima í vetur. Verður þeirri aðgerð fylgt nákvæmlega eftir og ákvörðun um frekari breytingar sem teljast okkur hagkvæmar til framtíðar tekin í kjölfar þess. Þannig hefur í öllu verið fylgt tilmælum um að leita allra leiða sem okkur eru færar og eru innan marka laga um þessa þjónustu í grunnskólum.
Rannveig Ásgeirsdóttir""
Ármann Kr. Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Þetta er greinargerð en ekki bókun en breytir því ekki að engra nýrra leiða var leitað og lýsir lítilli hugmyndaauðgi.
Ármann Kr. Ólafsson""
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra menntasviðs um að hækka verð á skólamáltíðum í 395 kr. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu:
""Undirritaður leggur til að bæjarráð samþykki eina af tillögu garðyrkjustjóra þar sem gert er ráð fyrir grillaðstöðu nálægt tjörninni í Kópavogsdal.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""
Tillagan var felld með þremur atkvæðum en tveir greiddu atkvæði með henni.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:
""Bæjarráð beinir því til garðyrkjustjóra að leggja fram nýjar tillögur um staðsetningu að grillaðstöðu í Kópavogsdal í umhverfis- og samgöngunefnd í samræmi við fyrri ákvörðun framkvæmdaráðs þar um.
Ólafur Þór Gunnarsson""
Bæjarráð samþykkir tillöguna einróma.
Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Undirritaður er út af fyrir sig ekki á móti grillaðstöðu við tjörnina í Kópavogsdal eins og kemur fram í tillögu Gunnars I, Birgissonar. Hins vegar þarf málið að fara eðlilega leið til nefnda og starfsmanna til afgreiðslu. Þess vegna greiði ég atkvæði með tillögu formanns bæjarráðs.
Hjálmar Hjálmarsson""
Bæjarráð vísar erindinu til starfsmannastjóra til umsagnar.
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Þakka svörin en bendi á að þarna er ein og hálf milljón vegna lögfræðiþjónustu sem er greidd vegna málskostnaðar bæjarfulltrúa.
Gunnar Ingi Birgisson""
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Vegna bókunar Gunnars Inga Birgissonar vill undiritaður taka fram að þar sem ofangreindum málum er ekki lokið hafa engar greiðslur runnið til undirritaðs og svo mun ekki verða þar til málinu líkur í Hæstarétti.
Ólafur Þór Gunnarsson""
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn til bæjarstjóra:
""Fyrir hvaða vinnu var Landslögum greitt og fyrir hvaða vinnu var Lagastofnun HÍ greitt?
Gunnar Ingi Birgisson""
Fundi slitið - kl. 10:15.
Lagt fram.