- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
"Undirritaður leggur til að blásið verði til hugmyndasamkeppni meðal allra þeirra sem hafa áhuga á nýtingu undirgangnanna við gamla Pósthúsið. Undirgöngin lágu upphaflega frá gömlu skiptistöðinni að gamla Pósthúsinu við Digranesveg. Þau tengdu jafnframt Hamraborgina við samgöngur og auðvelduðu eldri borgurum í Vogatungunni aðgengi að samgöngum og verslun og þjónustu. Undirgöngin hafa alltaf verið samkomustaður unglinga úr Kópavogi og raunar höfuðborgarsvæðinu öllu. Undirgöngin léku stórt hlutverk í pönkmenningunni á áttunda og níunda áratugnum og sleit graffiti listin á Íslandi barnsskónum þar á þeim níunda og tíunda. Í upphaflegum teikningum Benjamíns Magnússonar var gert ráð fyrir litlu leikhúsi þar fyrir ungmenni í bænum. Lagt er til að hugmyndasamkeppni verði haldin um framtíð undirgangnanna sem nú eru mannlaus og læst almenningi. Pétur Ólafsson" Bæjarráð vísar tillögunni til lista- og menningarráðs til úrvinnslu.
"Bæjarstjóri tilkynnti í vor að hann hefði falið endurskoðunarskrifstofunni Deloitte að framkvæma úttekt á því hvort niðurgreiðslur á lánum bæjarins fram í tímann til ábúanda jarðarinnar á Vatnsenda hafi verið eðlilegar og endurspeglað vandaða stjórnsýslu. Héraðsdómur hafði þegar úrskurðað jörðina úr hans eigu og vakti þessi ákvörðun furðu og var gagnrýnd af umsjónarmanni dánarbús jarðarinnar. Óskað er upplýsinga hvað líður þessari úttekt og að bæjarstjóri leggi fram dagsettan undirritaðan verksamning við Deloitte.
Pétur Ólafsson"
Bæjarráð vísar erindinu til forvarna- og frístundanefndar til afgreiðslu.
Bæjarráð vísar erindinu til forvarna- og frístundanefndar til afgreiðslu.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til umsagnar.
Bæjarráð vísar erindinu til stjórnar SSH til úrvinnslu.
Lagt fram.
Pétur Ólafsson lagði til að málinu verði vísað til umsagnar félagsmálaráðs.
Bæjarráð hafnar tillögunni en einn greiddi atkvæði með henni en tveir greiddu atkvæði á móti.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við höfum ekki verið að eltast við að gefa umsagnir um einstakar þingsályktanir. Ef við værum að gera það myndi það kalla á fleiri stöðugildi hjá bænum. Þetta fyrirkomulag hefur ríkt allt kjörtímabilið.
Ármann Kr. Ólafsson"
Ármann Kr. Ólafsson lagði til að erindinu verði vísað til stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga til úrvinnslu.
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Lítið mál er að velja og hafna umsögnum um þær þingsályktunartillögur sem hingað berast. Okkar mat er að ef um verulega hagsmuni bæjarbúa að ræða, þá skal vísa þingályktunartillögum til umsagnar innan bæjarkerfisins.
Pétur Ólafsson"
Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókun Péturs Ólafssonar.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Þetta eru breyttar áherslur hjá Samfylkingunni frá því að hún var í ríkisstjórn. Núna á allt í einu að fara að veita umsagnir um þingsályktanir þingmanna.
Ármann Kr. Ólafsson"
Bæjarráð samþykkir tillögu Ármanns Kr. Ólafssonar með þremur samhljóða atkvæðum. Tveir bæjarfullrúar sátu hjá.
"Óskað er eftir skriflegri greinargerð um verkefni sviðsstjóra í sérstökum verkefnum. Mikilvægt er að verkefni séu afar vel skilgreind þegar almannafé er annarsvegar.
Pétur Ólafsson"
Lagt fram.
Pétur Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Samkvæmt nýafstaðinni launakönnun BSRB er óútskýrður launamunur kynja meiri hjá sveitarfélögum en hjá ríkinu. Svo virðist sem Kópavogsbær sé þar síst til fyrirmyndar. Bærinn hefur þegar fengið gula spjaldið vegna þess að launakönnun meðal starfsfólks hefur ekki verið framkvæmd. Oddviti Samfylkingarinnar lagði inn fyrirspurn um gögnin fyrir einu og hálfu ári. Þau gögn sem hér eru lögð fram um laun þeirra starfsmanna sem heyra beint undir sviðsstjóra sýna að karlar eru með um 17% hærri laun en konur. Vonandi er óútskýrður launamunur kynjanna í bæjarkerfinu öllu ekki svo gríðarlegur en þessar tölur endurspegla þann mikla vanda sem Kópavogsbær stendur frammi fyrir þegar konur fá minna borgað, að því er virðist, bara af því að þær eru ekki karlar.
Pétur Ólafsson"
Hjálmar Hjálmarsson og Ólafur Þór Gunnarsson taka undir bókun Péturs Ólafssonar.
Hlé var gert á fundi kl. 9:13. fundi var fram haldið kl. 9:30.
Starfsmannastjóri mætti til fundar undir þessum lið.
Hlé var gert á fundi kl. 9:40. Fundi var fram haldið kl. 9:47.
Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Þegar Samfylkingin leiddi hér bæjarstjórn í 20 mánuði þá var ekki lyft litla fingri varðandi mögulegan kynbundin launamun. Hins vegar hefur þessi meirihluti sýnt þá ábyrgð að fá Háskólann á Akureyri til vinna launarannsókn sem nú stendur yfir og munu niðurstöður hennar liggja fyrir á næstu vikum. Útreikningum Samfylkingarinnar er vísað á bug enda er í þeim verið að bera saman epli og appelsínur. Sem dæmi má nefna að á stjórnsýslusviði er 0% launamunur. Hins vegar bendum við Samfylkingunni á að spara gífuryrði þar til niðurstaða rannsóknar HA liggur fyrir.
Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Rannveig Ásgeirsdóttir"
Fulltrúar Samfylkingar, VG og Næstbestaflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Í síðasta meirihluta var vinna hafin í málinu en eftir að meirihlutinn féll hefur ekkert verið gert. Það á að vera metnaðarmál sveitarfélagsins að vera í fararbroddi þegar kemur að jafnréttismálum og að sömu laun séu greidd fyrir sambærilega vinnu. Kyn á þar engu að skipta.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er rangt að ekkert hafi verið gert.
Ármann Kr. Ólafsson"
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.
Bæjarráð samþykkir starfsreglur fyrir sitt leyti.
Lagt fram.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og heimilar útboð snjómoksturs gangstétta og stíga skv. rammasamningi.
Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ég er mótfallinn þessu útboði og tel gatnahreinsun betur fyrir komið í höndum starfsmanna bæjarins.
Hjálmar Hjálmarsson"
Ómar Stefánsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Eins og staðan er núna á bærinn ekki tæki til að hreinsa allan bæinn.
Ómar Stefánsson"
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður er sammála því sjónarmiði Hjálmars Hjálmarssonar að betur fari á því að bærinn sinni þessu verkefni en forsenda þess er að bærinn fjárfesti í tækjum til að sinna því.
Ólafur Þór Gunnarsson"
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og heimilar útboð vegna stækkunar Hörðuvallaskóla.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og heimilar að lóðarréttindi Engjaþingi 1-3 verði færð af Húsafli ehf., kt. 700584-1359, til G.Á.bygginga ehf., kt. 660402-2680.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir drög að samkomulagi um uppgjör og breytta lóðarstærð að Skógarlind 2.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir innlausn á húsi, gróðri og öðrum mannvirkjum á Lækjarbotnalandi 50.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að rita ráðherra bréf vegna málsins.
Bæjarráð tekur undir bókun félagsmálaráðs.
Hjálmar Hjálmarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
Undirritaður leggur fram eftirfarandi bókun:
"5. grein húsnæðislaga nr. 44 frá árinu 1998:
"Sveitarstjórn ber ábyrgð á og hefur frumkvæði að því að leysa húsnæðisþörf þess fólks í sveitarfélaginu sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Í því skyni skal sveitarstjórn fylgjast með þörf á húsnæði í sveitarfélaginu."
Lögum samkvæmt ber sveitarfélaginu að sinna þessum málum. Undirritaður telur ekki ásættanlegt að vísa verkefninu frá sér til annarra stjórnvalda.
Hjálmar Hjálmarsson."
Hlé var gert á fundi kl. 8:50. Fundi var fram haldið kl. 9:00.
Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Það kristallast í bókun Hjálmars að fulltrúar næst besta flokksins eru ekki samstíga. Þá er vert að vekja athygli á því að biðlistinn er u.þ.b. sá sami og þegar Hjálmar var í meirihluta og aðhafðist hann ekkert þá. Hjálmari er síðan frjálst að leggja fram skýrar tillögur. Hins vegar er minnt á það að Kópavogsbær á 400 leiguíbúðir sem er mest í fjölda talið og hlutfallslega líka, á höfuðborgarsvæðinu að Reykjavík undanskilinni. Þá eru lög í landinu um skuldahlutfall sveitarfélaga sem vinnur gegn stórfelldum húsnæðiskaupum og því hljóta ríki og sveitarfélög að þurfa að taka höndum saman.
Ármann Kr. Ólafsson, Ómar Stefánsson, Rannveig Ásgeirsdóttir"
Sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Lagt fram.